- Advertisement -

Þau mála skrattann á vegginn

Morgunblaðið flytur „stórfrétt“, á forsíðu blaðsins, um að svo og svo mörgum hafi verið sagt upp vinnunni að undanförnu og stjórnendur fyrirttækja segja fleiri uppsagnir fram undan. Þetta er eðlilegur leikur úr Borgartúni 35, B35, í aðdraganda kjarasamninga.

Í raun er verið að segja launafólki að því fari best að haga sér skikkanlega eða það missi vinnuna.

„Ég vil alls ekki að við för­um að mála skratt­ann á vegg­inn. Það er of snemmt að full­yrða hvað er þarna ná­kvæm­lega á ferðinni. Það hef­ur verið mik­il eft­ir­spurn eft­ir fólki í flest­um at­vinnu­grein­um síðustu miss­eri og met­inn­flutn­ing­ur vinnu­afls. Þó verð ég að segja að sú mynd sem þarna birt­ist okk­ur er nokkuð áhyggju­efni,“ sagði Hall­dór Benjamín við Moggann.

„Ég vil alls ekki að við för­um að mála skratt­ann á vegg­inn. Það er of snemmt að full­yrða hvað er þarna ná­kvæm­lega á ferðinni. Það hef­ur verið mik­il eft­ir­spurn eft­ir fólki í flest­um at­vinnu­grein­um síðustu miss­eri og met­inn­flutn­ing­ur vinnu­afls. Þó verð ég að segja að sú mynd sem þarna birt­ist okk­ur er nokkuð áhyggju­efni,“ seg­ir Hall­dór.

Úr orðum Halldórs Benjamíns má lesa að verið sé að mála skrattann á vegginn. Eins gefur þetta tilefni til að skoða hvort þau fyrirtæki sem ekki geta borgað starfsfólki laun sem duga ti framfærslu séu nokkurs virði. Alla vega ekki fyrir launafólk.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: