- Advertisement -

Þröstur Ólafsson: Krónan er öflugasta arðránstæki hagkerfisins

Þröstur Ólafsson skrifar: Gengissig undanfarinna vikna segir sína sögu. Ástæður þess eru einfaldar. Már vildi að gengið sigi. Hann hefur þetta mikið (ekki alveg) í hendi sér. Þetta var aðvörun. 

Við Íslendingar erum þrútnir að reynslu af gengisleikfimi. Krónan er jú það sem Marx myndi kalla öflugasta arðránstæki hagkerfisins. Hún millifærir hávaðalaust fúlgur fjár frá almenningi til útflytjenda o.fl. 

Við stóðum frammi fyrir sama vanda 1986 (?) skömmu fyrir þjóðarsáttina þegar BSRB fór með himinskautum í kröfugerð, og árangur baráttu þeirra var þurrkaður út daginn eftir undirritun samninganna með gengisfellingu. 

Eins mun fara nú, ef skynseminni verður úthýst, en hún virðist ekki eiga upp á pallborðið hjá sumum sem standa í stafni. Fátækt fólk þarf fyrst og fremst viðráðanlegt húsnæði, lágt matar- og vöruverð og stöðuga (helst velborgaða) atvinnu. 

Þú gætir haft áhuga á þessum

Kröfugerð verkalýðsfélaganna ætti að snúast í mun meira mæli um matar- og vöruverð; nýja og gjörbreytta landbúnaðarstefnu ásamtstöðugum gjaldmiðli. Gengisfellingar íslensku krónunnar hafa leikið fátækt fólk grátt. Hún er mesti ógnvaldur almennings.

Greinin er tekin af Facebooksíðu Þrastar.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: