- Advertisement -

Velsæld á grunni misnotkunar?

Gerðubergsfundur Eflingar um brotastarfsemi á vinnumarkaði.

Efling – stéttarfélag boðar til opins fundar í Gerðubergi laugardaginn 27. október næstkomandi um brotastarfsemi á íslenskum vinnumarkaði, þar með talið mansal og önnur gróf réttindabrot.

Kynningu flytur María Lóa Friðjónsdóttir, sérfræðingur í vinnustaðaeftirliti hjá ASÍ.

Að því búnu munu félagsmenn Eflingar sem lent hafa í kjarasamningabrotum segja frá reynslu sinni og að lokum er tekið við spurningum úr sal.

Stækkandi hópur fólks er berskjaldaður gagnvart brotum atvinnurekenda á réttindum og stéttarfélög þurfa í auknu mæli að glíma við brotastarfssemi af ólíkum toga.

Kerfisbundinn launaþjófnað, vinnumansal, undirboð á vinnumarkaði, kennitöluflakk og svarta atvinnustarfssemi er meðal þeirra alvarlegu brota sem koma upp daglega.

Slík brotastarfsemi grefur undan heilbrigðum vinnumarkaði og grunnstoðum samfélagsins og felur í sér kúgun sem leiðir til fátæktar og aukinnar misskiptingar.

Til að setja hlutina í samhengi þá vantar milljónir eða milljarða í þjóðarkassann vegna þeirra sem svindla!

Það tapa allir á undirboðum og svartri atvinnustarfsemi á vinnumarkaði nema svindlararnir!

Kynningu flytur María Lóa Friðjónsdóttir, sérfræðingur í vinnustaðaeftirliti hjá ASÍ.

Að því búnu munu félagsmenn Eflingar sem lent hafa í kjarasamningabrotum segja frá reynslu sinni og að lokum er tekið við spurningum úr sal.

Túlkað verður milli ensku og íslensku á skjá meðan á fundi stendur og nálgast má streymi beint á Facebook síðu Eflingar.

https://www.facebook.com/events/1852752694846893/

https://efling.is/2018/10/23/velsaeld-a-grunni-misnotkunar-gerdubergsfundur-eflingar-um-brotastarfsemi-a-vinnumarkadi/

Fundur er öllum opinn og boðið verður upp á köku og kaffi í lok fundar sem lýkur eigi síðar en klukkan 16:00.

Að venju er á okkar vegum ókeypis barnapössun í bókasafninu í Gerðubergi gegn skráningu á vef Eflingar.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: