- Advertisement -

Verkalýðshreyfingin hefur liðið nóg fyrir fólk af hennar sauðahúsi

Kristjana Valgeirsdóttir „…er auðsjáanlega í ójafnvægi af ótta við að ný forysta stoppi sjálftöku hennar af félagsgjöldum.“

Gunnar Smári skrifar: „Nú þegar konan mín hefur saklaus verið dregin inn í deilur Kristjönu Valgeirsdóttur við yfirmenn sína á skrifstofu Eflingar rifjast upp gagnrýni félagsmanna og starfsmanna Dagsbrúnar, Verkamannasambandsins og síðar Eflingar, frá því um miðjan tíunda áratuginn og mörg ár þar á eftir, á að fundahöldum félaganna hafi ætíð verið beint inn í Kiwanishúsið við Engjateig, þar sem Mark Kristján Brink, sambýlismaður Kristjönu, var veitingamaður. Kristjana þekkir því spillingu frá fyrstu hendi og veit vel af almannaróm um gerspillingu hinna fámennu klíka sem náðu undir sig verkalýðsfélögum og notaði sjálfum sér til framdráttar.

Reynsla mín af átökum við spillt fólk er sú að það telur alla vera gerspillta, áttar sig ekki á að það sjálft sker sig frá fjöldanum. Flest fólk er eins og Alda Lóa, eiginkona mína; ósérhlífið fólk sem vinnur verk sín af heilindum og fyrir sanngjarna þóknun, í þeim tilfellum sem hún óskar eftir þóknun yfir höfuð. Þau sem þekkja til starfa Öldu Lóu vita að hún hefur gefið ómælda vinnu til baráttu hinna verr settu undanfarin ár. Engum sögum fer að slíku hjá Kristjönu þessari, sem ber út óhróður um Öldu Lóu. Kristjana tilheyrir þvert á móti þeim hópi sem drap niður afl Dagsbrúnar og síðan Eflingar, milli þess sem hún gætti þess að vænn hluti félagsgjaldanna rynnu til fyrirtækis sambýlismanns síns.

Í vor reis grasrót Eflingar upp gegn forystunni félagsins, þeim starfsháttum sem hún hafði beitt og þeirri stefnu sem hún hafði rekið. Það má segja að almennir félagsmenn Eflingar hafi risið upp og sent B-lista Sólveigar Önnu inn í félagið til að hreinsa þar til. Ekki hef ég fylgst með þeim aðförum, en miðað við það sem ég fengið að heyra í morgun vona að ég þessari Kristjönu verði fleygt út. Verkalýðshreyfingin hefur liðið nóg fyrir fólk af hennar sauðahúsi.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Gunnar Smári svaraði athugasemdum um skrif sín með þessum orðum:

„Fyrrum starfsmaður Eflingar hafði samband og sagði að allir veitingar vegna funda á vegum félagsins, innan húss og utan, hefðu alltaf komið frá sambýlismanni þessa fjármálastjóra félagsins, sem nú ber út óhróður um eiginkonu mína. Manneskjan er auðsjáanlega í ójafnvægi af ótta við að ný forysta stoppi sjálftöku hennar af félagsgjöldum. Það er ekki furða að félagsmenn Eflingar hafi risið upp og varpað af sér gegnumspilltri forystu loks þegar efnt var til kosninga. Og lýsandi fyrir spillingarliðið að springa úr frekju þegar í ljós kemur að það getur ekki farið með félagið eins og það eigi það.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: