- Advertisement -

Vonglaður Ásmundur

Treystir á að öryrkjar losni undan krónu á móti krónu skerðingum.

„Mig langar að segja þingheimi frá því að um helgina var Sjálfstæðisflokkurinn með landsfund sinn,“ byrjaði Ásmundur Friðriksson þingmaður ræðu á Alþingi í gær. Ásmundur var ánægur með landsfundinn.

„Ég var sérstaklega ánægður með það að í lok þingsins var samþykkt að draga úr skerðingum á örorku- og ellilífeyri,“ sagði þingmaðurinn. „Það er eitt af okkar stóru málum sem við viljum vinna að, að tryggja öllum tækifæri til þátttöku á vinnumarkaði en króna á móti krónu skerðing viðgengst enn hjá þeim sem eru á örorkulífeyri. Þá skerðingu ber að afnema nú þegar, það var samþykkt. Ég fagna því og treysti því að við í þessu húsi stöndum saman um þá breytingu.“

Ekki er ástæða til að efast um gleði Ásmundar. Hann er sýnilega vongóður um að ábyrgðarfólk flokksins fylgi ályktunum eftir í störfum sínum. Rétt er að minnast orða nýkjörins varaformanns flokksins, Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur um aðra samþykkta ályktun frá sama landsfundi. Hún sagði: „Þessi prósentutala af vergri landsframleiðslu í opinber útgjöld er eitthvað markmið í ályktun.“ Og fannst ekki rétt að gera of mikið úr samþykktinni.

Ásmundur er mannblendinn. Hann sagði líka: „Það er ánægjulegt fyrir okkur sem höfum sótt landsfundi áratugum saman að hitta gamla félaga og ræða málin og skerpa á vináttunni. Það er auðvitað hluti af pólitíkinni að eiga vini og eiga góðar stundir saman, hafa líka gaman í pólitíkinni. Það er mjög mikilvægt að við getum haft gaman af starfi okkar við að undirbúa það sem er til heilla fyrir land og lýð, það er auðvitað markmið okkar allra með þessari vinnu okkar hér.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: