Greinar

100 orð um (ó)hæstvirtan Bjarna

By Miðjan

March 05, 2020

100 orð um hæstvirtan Bjarna

Varla eru til ólíkari stjórnmálamenn en Björn Leví og Bjarni Ben. Þeir fela ekki vandlætinguna hvor á öðrum. Björn Leví er sá sterkari. Bjarna er svo misboðið að Björn Leví gangi um þingsalinn á sokkaleistunum. Björn Leví greinilega gaman af og mætir í ósamstæðum sokkum. Í sitthvorum sokknum, sagði særður Bjarni i ræðustól.

Bjarni hefur farið í fýlu og yfirgefið þingsalinn þegar Björn Leví kom við kaunin á honum. Lítilmannlegt. Í gær lék Björn Leví lúmskan leik. Komst undan að ávarpa Bjarna sem hæstvirtan.

Björn Leví sagði: „Hæstvirtur forsætisráðherra annars vegar og fjármálaráðherra hins vegar.“