Fréttir

383 börn bíða eftir því að komast í öruggt húsnæði

By Miðjan

June 24, 2023

Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar:

Biðlistar eftir félagslegu leiguhúsnæði eru langir hjá borginni. 764 manneskjur voru enn á biðlista eftir slíku húsnæði í upphafi þessa mánaðar. Á bak við þann fjölda eru 383 börn sem bíða eftir því að komast í öruggt skjól. Það er ekkert barnvænt við borg sem lætur börn og fjölskyldur þeirra búa við ótryggar húsnæðisaðstæður.