- Advertisement -

40 prósent af allri efnhagsstarfsemi í Rússlandi snýst nú um stríðið

Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifaði:

Lét Copilot búa til fyrir mig mynd, þar sem ég ímynda mér að Pútín sé að bíða eftir símtalinu frá Trump, eftir fund hans með Zelenský og ,,sjömenningunum“ sem fóru með honum til Washington. Pútin vill hins vegar ekkert frið, það er mitt mat. Hjá honum hefur stríðið öðlast sitt eigið líf. Ef Rússland og Úkraína væru einstaklingar af holdi og blóði væri ,,Rússía“ búin að fremja mjög alvarlega líkamsárás gagnvart Úkraínu, það sem væri hægt að skilgreina sem „tilraun til manndráps.“ En hefur enn sem er komist upp með verknaðinn. Auðvitað reynir VP að snúa öllu á hvolf og hræra í sannleikanum, sem og Trump, sem hann virðist hafa algerlega í vasanum. Vert að minna á að talið er að 40% af allri efnhagsstarfsemi í Rússlandi snýst nú um stríðið og óendanlegum peningum dælt í það, menn keyptir til herþjónustu og annað slíkt.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: