
Jóhann Þorvarðarson skrifar:
Maður hlýtur því að skilja orð Guðrúnar þannig að flokkurinn hafi loksins komist að þeirri niðurstöðu að lausnin sé sú að Sjálfstæðisflokkurinn fari aldrei aftur í ríkisstjórn.
Frá árinu 1981 hefur Sjálfstæðisflokkurinn setið við stjórnvölinn nær sleitulaust, eða um 89 prósent tímans. Á stjórnartímanum hefur ársverðbólga að jafnaði verið um 10 prósent samkvæmt opinberum gögnum. Auk þess bar flokkurinn, ásamt Framsóknarflokknum, meginábyrgð á því regluverki og þeirri stefnu sem leiddi til hruns fjármálakerfisins árið 2008. Þá töpuðu margar fjölskyldur aleigu sinni, á meðan innmúraðir Sjálfstæðismenn fengu viðvörun og gátu varið fjárfestingar sínar.
Með þessa sögu í farteskinu telur núverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, Guðrún Hafsteinsdóttir, sig þess umkomna að ráðleggja þjóðinni, ef ekki beinlínis fyrirskipa henni, að segja nei 29. ágúst. Hún heldur því fram að Ísland þurfi ekki á ESB að halda til að ná niður verðbólgu og vöxtum. Að hennar mati séu þetta einfaldlega heimaverkefni sem við getum leyst sjálf.
Það er vissulega hressandi að heyra þetta frá formanni flokks sem hefur haft rúm 40 ár til að leysa einmitt þessi heimaverkefni.
…vandamál sem Sjálfstæðisflokkurinn er hluti af.
Maður hlýtur því að skilja orð Guðrúnar þannig að flokkurinn hafi loksins komist að þeirri niðurstöðu að lausnin sé sú að Sjálfstæðisflokkurinn fari aldrei aftur í ríkisstjórn. Ef marka má söguna er það ekki fráleit hugmynd. Ef þakið lekur í 40 ár er kominn tími til að skipta um smið, ekki fötur.
Bara það að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið myndi, að mínu mati, lækka verðbólguvæntingar strax og þar með vexti og verðbólgu. Að minnsta kosti væri verið að prófa leið sem hefur skilað góðum árangri víða annars staðar.
Í stað þess að halda í krónuna, sem er skjól sérhagsmuna, kæmi trúverðug lausn þar sem evran yrði hagstjórnarlegt akkeri í brimsöltum ólgusjó.
Þegar heimaverkefni hefur verið óunnið í meira en fjóra áratugi hættir það að vera heimaverkefni. Þá er það orðið kerfisbundið vandamál sem Sjálfstæðisflokkurinn er hluti af. Spurningin er því ekki hvort við eigum að skoða þann kost að ganga í Evrópusambandið, heldur hversu lengi við höfum efni á að bíða. Og hvort sú bið sé áhættunnar virði í sífellt óöruggari heimi.