Greinar

43 prósent sykur

By Miðjan

April 20, 2026

Gunnar Smári skrifaði:

„Stjórnvöld gera alltof lítið til að verja neytendur fyrir vondum og óhollum mat. Það er fyrir löngu kominn tími að setja varúðarmerki á dísætar matarvörur, hvort sem notaður er sykur eða sætuefni. Sama á við um ofsaltaðar vörur. Það er ekkert að því að ríkið setji mörk við sætu í mjólkurvörum, svo dæmi sé tekið; til dæmis við 3% innihalds og framleiðendur fái að merkja vörur sínar hóflega sykraðar.

Þeir sem framleiða vörur með yfir 6% sykri yrðu þá að merkja vörurnar ofsykraðar með áberandi hætti. Ísey skyr frá MS er með 10% sykri, nokkuð sem engum dytti í hug að setja í skyrið sitt heima. Um daginn fór ég í bíó og keypti mér Nóakropp (hafði verið ráðlagt að sleppa poppi og öðru söltuðu). Ég beit einn bita og gat ekki borðað meira. Sá svo á netinu að 43 grömm af hverjum 100 grömmum í pokanum var sykur. Hversu sturlað er það fólk sem framleiðir svona nokkuð? Það verður að taka af þeim völdin, þeim er augljóslega ekki treystandi.“