Fréttir

470 aldraðir eru á biðlista

By Miðjan

February 04, 2020

390 einstaklingar voru á biðlista eftir varanlegu hjúkrunarrými og 80 á biðlista eftir varanlegu dvalarrými í byrjun nóvember í fyrra.

Lengstur er biðtíminn á Sauðárkróki, eða 527 dagar.

Það var Halla Signý Kristjánsdóttir Framsóknarflokki sem spurði Svandísi Svavarsdóttur. Svar hennar hér að neðan:

 1.      Hversu margir einstaklingar, sem hafa farið í gegnum færni- og heilsumat, eru á biðlista eftir varanlegu hjúkrunar- og dvalarrými (fyrsta val á heimili), sundurliðað eftir heimilum sem fá greidd daggjöld frá Sjúkratryggingum Íslands?     2.      Hver er meðalbiðtími þeirra sem eru á biðlista eftir hjúkrunar- og dvalarrými, sundurliðað eftir hjúkrunar- og dvalarheimilum?    Hinn 1. nóvember 2019 voru 390 einstaklingar á biðlista eftir varanlegu hjúkrunarrými og 80 á biðlista eftir varanlegu dvalarrými. Er þá miðað við að skráð hafi verið ósk um heimili og ekki sé um að ræða flutning milli heimila.    Í svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Ásgerðar K. Gylfadóttur um stöðu á biðlistum, þskj. 631, 283. mál, voru tölur fengnar frá færni- og heilsumatsnefndum. Samkvæmt þeim tölum beið 491 eftir hjúkrunarrými en nefndirnar fengu ekki forsendur um hvaða skilyrði ætti að miða við til að telja á biðlista. Ætla má að það skýri mismuninn.    Sundurliðun eftir heimilum má sjá í eftirfarandi töflum.

Tafla 1: Fjöldi einstaklinga á biðlista eftir hjúkrunarrými og meðalbiðtími í dögum, sundurliðað á hjúkrunarheimili 1. nóvember 2019.

Hjúkrunarheimili Fjöldi á biðlista Meðalbiðtími í dögum Fjöldi sem beðið hefur lengur en 90 daga
Ás, Hvera­gerði 4 250 3
Barma­hlíð, Reyk­hól­um 0 0 0
Brák­ar­hlíð Borg­ar­nesi 6 94 2
Dal­bær, Dal­vík 6 137 3
Drop­laug­arstaðir, Reykja­vík 6 126 3
Dval­ar­heim­ilið Stykk­is­hómi 1 10 0
Eir, Reykja­vík 9 69 2
Fella­skjól, Grund­arf­irði 3 87 1
Fell­sendi, Dalasýslu 1 375 1
Greni­lund­ur, Greni­vík 1 31 0
Grund, Reykja­vík 8 78 2
Hamr­ar, Mos­fells­bæ 7 127 3
HSU Höfn, Hornafirði 2 10 0
HSU Sel­fossi 9 54 1
HSU Vest­manna­eyj­um 1 80 0
HVE Stykk­is­hólmi 0 0 0
HVEST Pat­reks­firði 1 296 1
Hjallatún, Vík 0 0 0
HVEST Þing­eyri – Tjörn 2 256 1
Seltjörn, Seltjarn­ar­nesi 10 167 7
Horn­brekka, Ólafs­firði 0 0 0
Boðaþing, Kópa­vogi 13 105 4
Hrafn­ista Hlévang­ur 2 157 2
Hrafn­ista Hraun­vang­ur 18 143 8
Ísa­fold, Garðabæ 21 74 8
Hrafn­ista Laug­arás 24 96 10
Nesvell­ir, Reykja­nes­bæ 8 108 4
Sléttu­veg­ur, Reykja­vík 25 64 4
Hraun­búðir, Vest­manna­eyj­um 2 196 2
HSA Dyngja, Eg­ils­stöðum 7 154 4
HSA Fossa­hlíð, Seyðis­firði 2 183 2
HSA Nes­kaupstað 1 31 0
HSN Blönd­uósi 3 23 0
HSN Fjalla­byggð 6 164 3
HSN Húsa­vík 4 694 4
HSN Sauðárkróki 7 527 7
Huldu­hlíð, Eskif­irði 5 154 3
Hvamm­ur, Húsa­vík 5 182 2
HVE Hólma­vík 0 0 0
HVE Hvammstanga 3 64 1
HVEST Berg, Bol­ung­ar­vík 1 16 0
HVEST Eyri, Ísaf­irði 9 220 7
Höfði, Akra­nesi 29 162 17
Jaðar, Ólafs­vík 1 140 1
Kirkju­hvoll, Hvols­velli 2 24 0
Klaust­ur­hól­ar, Kirkju­bæjark­laustri 0 0 0
Lund­ur, Hellu 2 157 1
Mörk, Reykja­vík 37 190 24
Naust, Þórs­höfn 0 0 0
Roðasal­ir, Kópa­vogi 3 182 2
Selja­hlíð, Reykja­vík 0 0 0
Silf­ur­tún, Búðar­dal 0 0 0
Skjól, Reykja­vík 4 94 1
Skóg­ar­bær, Reykja­vík 7 108 4
Sóltún, Reykja­vík 6 100 3
Sólvang­ur, Hafnar­f­irði 9 64 2
Sól­vell­ir, Eyr­ar­bakka 1 10 0
Sunda­búð, Vopnafirði 0 0 0
Sunnu­hlíð, Kópa­vogi 8 90 2
Sæ­borg, Skagaströnd 0 0 0
Upp­sal­ir, Fáskrúðsfirði 1 86 0
Víðihlíð, Grinda­vík 4 243 4
Öldrun­ar­heim­ili Ak­ur­eyr­ar, Lög­manns­hlíð 8 287 5
Öldrun­ar­heim­ili Ak­ur­eyr­ar, Hlíð 25 281 16
Samtals 390 187

Tafla 2: Fjöldi einstaklinga á biðlista eftir dvalarrýmum og meðalbiðtími í dögum, sundurliðað á hjúkrunarheimili.

Hjúkrunarheimili Fjöldi á biðlista Meðalbiðtími í dögum Fjöldi sem beðið hefur lengur en 90 daga
Ás, Hvera­gerði 2 26 0
Brák­ar­hlíð Borg­ar­nesi 5 181 2
Dal­bær, Dal­vík 2 644 2
Fella­skjól, Grund­arf­irði 1 44 0
Grund, Reykja­vík 1 60 0
Hrafn­ista Hraun­vang­ur 2 493 2
Hrafn­ista Laug­arás 1 185 1
Hraun­búðir, Vest­manna­eyj­um 4 219 4
HSN Blönd­uósi 3 92 1
HSN Sauðárkróki 12 491 9
Hvamm­ur, Húsa­vík 17 313 11
Höfði, Akra­nesi 11 212 8
Jaðar, Ólafs­vík 2 107 1
Kirkju­hvoll, Hvols­velli 2 251 2
Lund­ur, Hellu 2 10 0
Silf­ur­tún, Búðar­dal 2 109 1
Sól­vell­ir, Eyr­ar­bakka 1 435 1
Öldrun­ar­heim­ili Ak­ur­eyr­ar 2 – Hlíð 10 391 7
Samtals 80 52

     3.      Hvert er hlutfall þeirra sem hlotið hafa varanlega vist á hjúkrunar- og dvalarheimili og hafa færni- og heilsumat úr öðrum heilbrigðisumdæmum en viðkomandi heimili er í, sundurliðað eftir hjúkrunar- og dvalarheimilum?    Á árunum 2014–2018 var 4.721 dvalar- eða hjúkrunarrými úthlutað á landsvísu (þar sem skráð var hvaða færni- og heilsumatsnefnd hafði afgreitt umsókn um varanlega búsetu í dvalar- eða hjúkrunarrými). Af þeim var 179 veitt rými í öðru heilbrigðisumdæmi en færni- og heilsumat var gert, eða 3,8%. Á sama tíma var 335 dvalarrýmum úthlutað, þar af var 4,3% veitt í öðru heilbrigðisumdæmi en færni- og heilsumat var gert. Á eftirfarandi töflum má sjá sundurliðun eftir heimilum, annars vegar fyrir úthlutuðum hjúkrunarrýmum (tafla 3) og hins vegar fyrir úthlutuðum dvalarrýmum (tafla 4).

Tafla 3: Hlutfall úthlutaðra hjúkrunarrýma árin 2014–2018 þar sem færni- og heilsumat er framkvæmt af færni- og heilsumatsnefnd annars heilbrigðisumdæmis en hjúkrunarheimilið er í, sundurliðað á hjúkrunarheimili.

Heimili Fjöldi úthlutaðra hjúkrunarrýma Hlutfall veitt úr öðru heilbrigðisumdæmi
Ás, Hvera­gerði 89 20,2
Barma­hlíð, Reyk­hól­um 10 90,0
Bles­astaðir, Skeiðum 1 0,0
Brák­ar­hlíð Borg­ar­nesi 45 20,0
Dal­bær, Dal­vík 22 4,5
Drop­laug­arstaðir, Reykja­vík 179 0,6
Dval­ar­heim­ilið Stykk­is­hómi 16 12,5
Eir, Reykja­vík 261 1,5
Fella­skjól, Grund­arf­irði 7 14,3
Fell­sendi, Dalasýslu 21 81,0
Garðvang­ur, Garði 4 0,0
Greni­lund­ur, Greni­vík 8 0,0
Grund, Reykja­vík 418 2,6
Hamr­ar, Mos­fells­bæ 58 0,0
HSU – Höfn, Hornafirði 47 6,4
HSU – Sel­fossi 53 0,0
HSU – Vest­manna­eyj­um 22 4,5
HVEST – Pat­reks­firði 24 4,2
HSS Reykja­nes­bæ 6 0,0
Hjallatún, Vík 42 11,9
HVEST Þing­eyri – Tjörn 8 0,0
Hlévang­ur Kefla­vík 1 0,0
Horn­brekka, Ólafs­firði 28 7,1
Hrafn­ista Boðaþing 80 2,5
Hrafn­ista Hlévang­ur 59 1,7
Hrafn­ista Hraun­vang­ur 219 3,2
Hrafn­ista Ísa­fold 97 1,0
Hrafn­ista Laug­arás 297 2,0
Nesvell­ir, Reykja­nes­bæ 100 3,0
Hraun­búðir, Vest­manna­eyj­um 37 0,0
HSA – Dyngja Eg­ils­stöðum 62 0,0
HSA – Fossa­hlíð, Seyðis­firði 26 0,0
HSA – Nes­kaupstað 19 5,3
HSN Blönd­uósi 27 7,4
HSN Fjalla­byggð 31 0,0
HSN Húsa­vík 51 2,0
HSN Sauðárkróki 59 1,7
Huldu­hlíð Eskif­irði 19 0,0
Hvamm­ur, Húsa­vík 22 0,0
HVE Hólma­vík 11 18,2
HVE Hvammstanga 20 5,0
HVEST – Berg, Bol­ung­ar­vík 17 5,9
HVEST – Eyri, Ísaf­irði 60 8,3
Höfði, Akra­nesi 77 10,4
Ísa­fold, Garðabæ 59 0,0
Jaðar, Ólafs­vík 11 27,3
Kirkju­hvoll, Hvols­velli 18 11,1
Klaust­ur­hól­ar, Kirkju­bæjark­laustri 24 8,3
Kumb­ara­vog­ur, Stokks­eyri 38 10,5
Lund­ur, Hellu 58 8,6
Mörk, Reykja­vík 165 2,4
Naust, Þórs­höfn 10 10,0
Roðasal­ir, Kópa­vogi 14 0,0
Selja­hlíð, Reykja­vík 34 0,0
Silf­ur­tún, Búðar­dal 15 13,3
Skjól, Reykja­vík 168 0,6
Skóg­ar­bær, Reykja­vík 183 3,3
Sóltún, Reykja­vík 182 1,6
Sólvang­ur, Hafnar­f­irði 139 2,9
Sól­vell­ir, Eyr­ar­bakka 5 0,0
Sunda­búð, Vopnafirði 15 0,0
Sunnu­hlíð – Vigdís­ar­holt 118 0,0
Sunnu­hlíð, Kópa­vogi 15 0,0
Sæ­borg, Skagaströnd 8 0,0
Upp­sal­ir, Fáskrúðsfirði 28 0,0
Víðihlíð, Grinda­vík 27 11,1
Öldrun­ar­heim­ili Ak­ur­eyr­ar 1 – Lög­manns­hlíð 83 0,0
Öldrun­ar­heim­ili Ak­ur­eyr­ar 2 – Hlíð 209 0,5
Samtals 4.386 3,8

Tafla 4:Hlutfall úthlutaðra dvalarrýma árin 2014–2018 þar sem færni- og heilsumat er framkvæmt af færni- og heilsumatsnefnd annars heilbrigðisumdæmis en hjúkrunarheimilið er í, sundurliðað á hjúkrunarheimili.

Heimili Fjöldi úthlutaðra dvalarrýma Hlutfall veitt úr öðru heilbrigðisumdæmi
Ás, Hvera­gerði 23 13,0
Barma­hlíð, Reyk­hól­um 2 50,0
Bles­astaðir, Skeiðum 6 0,0
Brák­ar­hlíð Borg­ar­nesi 26 11,5
Dal­bær, Dal­vík 24 0,0
Dval­ar­heim­ilið Stykk­is­hómi 12 8,3
Fell, Reykja­vík 4 0,0
Fella­skjól, Grund­arf­irði 2 0,0
Greni­lund­ur, Greni­vík 2 0,0
Grund, Reykja­vík 4 0,0
Heil­brigðis­stofn­un Suður­lands – Höfn, Hornafirði 5 20,0
Hjallatún, Vík 3 0,0
Horn­brekka, Ólafs­firði 13 0,0
Hrafn­ista Hraun­vang­ur 35 5,7
Hrafn­ista Laug­arás 4 0,0
Hraun­búðir, Vest­manna­eyj­um 11 0,0
HSN Blönd­uósi 20 5,0
HSN Sauðárkróki 17 0,0
Hvamm­ur, Húsa­vík 21 0,0
Höfði, Akra­nesi 31 0,0
Jaðar, Ólafs­vík 8 0,0
Kirkju­hvoll, Hvols­velli 1 0,0
Klaust­ur­hól­ar, Kirkju­bæjark­laustri 5 40,0
Lund­ur, Hellu 3 0,0
Silf­ur­tún, Búðar­dal 5 0,0
Sól­vell­ir, Eyr­ar­bakka 16 0,0
Sæ­borg, Skagaströnd 1 0,0
Upp­sal­ir, Fáskrúðsfirði 8 0,0
Öldrun­ar­heim­ili Ak­ur­eyr­ar, Hlíð 23 0,0
Samtals     335     4,2

     4.      Hversu margir þeirra, sem hafa færni- og heilsumat og eru á biðlista eftir hjúkrunar- og dvalarrými, liggja á legudeildum heilbrigðisstofnana, þar á meðal Landspítala? Hvert er hlutfall legudaga þessara einstaklinga af heildarlegudögum viðkomandi legudeilda frá síðastliðnum áramótum?    Fjöldi þeirra einstaklinga sem voru með gilt færni- og heilsumat og biðu á Landspítala eftir varanlegu hjúkrunarrými voru að meðaltali 44 einstaklingar frá janúar og út nóvember árið 2019 og nýtti 9,8% þeirra legudaga sem nýttir voru á viðkomandi deildum á þeim tíma. Þetta er fyrir utan þá sem dvelja í biðrýmum á Vífilsstöðum sem eingöngu eru ætluð til þeirrar starfsemi en það eru 44 rými og eru fullnýtt.    Á Sjúkrahúsinu á Akureyri var fjöldi þeirra einstaklinga sem voru með gilt færni- og heilsumat í bið eftir varanlegu hjúkrunarrými að meðaltali 4,4 á hverjum tíma frá janúar og út nóvember árið 2019 og nýtti 3,35% þeirra legudaga sem nýttir voru á viðkomandi deildum á þeim tíma.    Ekki var unnt að kalla þessar upplýsingar fram á öðrum heilbrigðisstofnunum og voru þær því beðnar um punktstöðu 12. desember sl. með tilliti til fjölda inniliggjandi einstaklinga á biðlista eftir varanlegu hjúkrunar- eða dvalarrými og hlutfalli þeirrar nýtingar rúma á heildarfjölda rúma á viðkomandi stofnun.    Á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja voru þrír einstaklingar inniliggjandi og á biðlista eftir hjúkrunarrými og samsvaraði það nýtingu 15,4% rúma á þar.    Á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi voru átta einstaklingar inniliggjandi og á biðlista eftir hjúkrunarrými og samsvaraði það 28,6% nýtingu rúma þar.    Á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði var einn einstaklingur inniliggjandi og á biðlista eftir hjúkrunarrými og samsvaraði það 6,7% nýtingu rúma þar.    Á Heilbrigðisstofnun Norðurlands var einn einstaklingur inniliggjandi á Húsavík og á biðlista eftir hjúkrunarrými og samsvaraði það 12,5% nýtingu rúma þar og á Sauðárkróki voru þrír inniliggjandi og á biðlista eftir hjúkrunarrými sem samsvaraði 42,8% nýtingu rúma þar.    Á Heilbrigðisstofnun Austfjarða var einn einstaklingur inniliggjandi og á biðlista eftir hjúkrunarrými og samsvaraði það 4,3% nýtingu rúma þar.    Á Heilbrigðisstofnun Suðurlands voru þrír einstaklingar inniliggjandi á Selfossi og á biðlista eftir hjúkrunarrými og samsvaraði það 16,7% nýtingu rúma þar og í Vestmannaeyjum voru þrír inniliggjandi og á biðlista eftir hjúkrunarrými sem samsvaraði 20% nýtingu rúma þar.Deila