Stefán Ólafsson skrifaði:
Ég skrifa um skattfríðindi þeirra tekjuhæstu í hátekjublaði Heimildarinnar í dag.
Hátekjufólk sem er með stóran hluta tekna sinna sem fjármagnstekjur fær mun minni álagningu á þær en láglaunafólk greiðir af launum sem eru undir 475 þús. á mánuði.
Skattaafsláttur til þeirra tekjuhæstu er rúmir 52 milljarðar á ári en útgjöld ríkisins í stuðning við heimili lágtekjufólks (barnabætur, vaxtabætur og leigubætur samanlagðar) er um 27 milljarðar á ári.
Ef fjármagnstekjur væru skattlagðar eins og meðallaun fullvinnandi launafólks þá hefði ríkið um 52 milljörðum meira á hverju ári til að leggja í innviði og velferð almennings. Mun meiri þörf er á því en að styrkja ríkasta fólk landsins.