Greinar

60.000 ónotaðir fermetrar

By Miðjan

September 05, 2025

Dagur B. Eggertsson alþingismaður skrifaði:

„60.000 fermetrar húsnæðis í eigu ríkisins um land allt standa auðir. Þetta kom fram í svari frá fjármálaráðherra við spurningum mínum á Alþingi og svarið birtist í gær. Þetta eru gríðarleg verðmæti – og þau er mjög vanmetin. Ég dró saman fyrstu pælingar um þau tækifæri sem falist geta í því að nýta þetta húsnæði betur í grein sem var að birtast á Vísi.

Þetta tengist beint frábærum fréttum af þvi að gamla húsnæði Tryggingarstofunar við Hlemm er nú að fara til útleigu fyrir skapandi fólk og verkefni – líkt og Hafnarhúsið hefur verið nýtt að undirlagi borgarinnar síðustu ár. Í báðum tilvikum er sami öflugi hópur undir forystu Halla Þorleifs (Haraldur Thorleifsson) sem leiðir verkefnið (sjá mynd frá undirrituninn um Hafnarhúsið). En í ljósi þess að TR húsnæðið hefur staðið autt í heil sex ár spyr ég hvort ríkið hefði ekki getað farið þessa leið fyrr og hvort svipuð tækifæri séu ekki til að koma húsnæði í notkun um land allt?

Til hamingju með Hlemmur.haus – og vel gert Halli og félagar! En varðandi autt húsnæði ríkisins er augljóslega spennandi verk að vinna.

Væri gaman að fá pælingar og ábendingar frá fólki um land allt um áhugavert húsnæði.“