Greinar

Landbúnaður og hagfræði

By Miðjan

September 19, 2025

Vilhjálmur Bjarnason, fyrrverandi alþingsimaður, skrifaði grein í Mogga dagsins í dag. Hér fer stutt útgáfa sem hann birti á Facebook:

„Það er kunnara en frá þurfi að segja að Ólafur vinur minn hringir oft í ritara á síðkvöldum til að ræða áhyggjuefni sín. Ritari hefur margoft sagt Ólafi það að hann beri ekki ábyrgð á þjóðarhag. Það eina sem Ólafur þurfi að hugsa um er eiginn hagur. Með því að efla eiginn hag þá bætir Ólafur þjóðarhag.

Ólafur er áhugamaður um landbúnað og hagfræði. Ólafur veit fullvel að landbúnaðarhagfræði er eins og óákveðið fornafn. Landbúnaðarhagfræði getur staðið fyrir hvað sem er. Almennt fjallar hagfræði um hámörkun hagnaðar eða hámörkun velferðar. Landbúnaðarhagfræði snýst að mestu leyti um að ná sem mestum tilfærslum úr ríkissjóði til greinarinnar.

Eitt sinn var haft eftir ríkisskattstjóra um eðli skattalaga að gengið sé út frá skattfrelsi bænda. Sveitahreppar eiga að lifa á fasteignagjöldum af sumarhúsum fólks að sunnan.“