Hafn Magnússon skrifaði:
Vinir Davíðs Oddssonar minntust hans á samfélagsmiðlum á mánudaginn. Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, kvaddi hann með ljóði eftir Sigurð Nordal. Ekki verður annað séð að með vali á þessu kvæði sé Hannes á snyrtilegan hátt að vekja athygli á eftirkomendum Davíðs í forystunni.
Falla hinar öldnu eikur,- ófullt skarð til tveggja handa,- rótafastar, fagurkrýndar, friðarmerki skógarlanda. Úfnar af þjósti og úlfaþyti eftir birkirenglur standa.