Umræðan:
Arnar Þór Jónsson, lögmaður og fyrrum forsetaframbjóðandi, skrifaði:
Michael Carrick, núverandi þjálfari Man. Utd., var m.a. leikmaður West Ham og Tottenham áður en hann fór til Man. Utd. Þótt Carrick hafi eflaust jákvæðar tilfinningar til West Ham myndi hann aldrei komast upp með að lýsa því yfir að til greina kæmi að láta Man.Utd. skora sjálfsmark til að þóknast West Ham.
Þótt þetta megi kallast augljós sannindi eru Íslendingar nú með utanríkisráðherra sem ber augljóslega mjög hlýjan hug til ESB. Svo hlýjan að hún íhugar að stilla upp „vörn“ sem útiloki ekki að skora sjálfsmark af hálfu Íslands með því að „viðurkenna samningsbrot“.
Á fundi með utanríkismálanefnd í fyrradag minnti ég þingmenn á að þeir hafa undirritað drengskaparheit um að vernda og virða stjórnarskrána og að frumskylda þeirra er við íslenska hagsmuni en ekki hagsmuni ESB. Ég varaði þingmenn við því að verði frumvarpið að lögum gæti það gert dómstól ESB kleift að framkvæma lögfræðilegt valdarán á Íslandi með framsæknum („dýnamískum“) lögskýringum sem ýta munu undir stöðugt nánari lagalegan samruna á Evrópuréttinum í hag en á kostnað stjórnarskrárinnar. Þingmenn mega ekki vera slegnir valkvæðri blindu gagnvart þessu. EES samningurinn stendur ekki ofar íslensku stjórnarskránni. Ef þessu tvennu lýstur saman verður EES samningurinn að víkja.