- Advertisement -

Að fólkið beri sigurorð af elítunni

Þorvaldur Gylfason prófessor skrifar:

Við fórum nokkur saman óbreyttir borgarar á rútu hringinn í kringum landið dagana fyrir kosninguna til að kynna frumvarpið, en aðrir fundir voru varla haldnir opinberlega. Þingið var eins og áhugalaus risaeðla.

„Það hefur gerzt nokkrum sinnum í sögu lýðveldisins að fólkið í landinu hefur borið sigurorð af elítunni í lýðræðislegum kosningum þar sem atkvæði allra landsmanna vógu jafnt, sem er lykilatriði hér.

Fyrst gerðist þetta 1952 þegar Sjálfstæðisflokkurinn reyndi að gera sinn mann, sr. Bjarna Jónsson dómkirkjuprest, að forseta Íslands. Fólkið snerist gegn Sjálfstæðisflokknum í þessu kjöri og kaus heldur Ásgeir Ásgeirsson forseta.

Næst gerðist þetta aftur 1968. Þá endurtók sagan sig þannig að Sjálfstæðisflokkurinn, að vísu ekki nema með hálfum hug, reyndi að gera Gunnar Thoroddsen fv. ráðherra og borgarstjóra að forseta, en fólkið reis upp gegn þessari ráðagerð og kaus heldur Kristján Eldjárn þjóðminjavörð með yfirburðum.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Nema nú héldu
flokkarnir sig til hlés.

Kosningabaráttan í bæði skiptin var býsna harkaleg. Flokkarnir höfðu allar klær úti.

Enn gerðist þetta 2012 þegar alþingi efndi til þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá. Nema nú héldu flokkarnir sig til hlés. Stjórnarflokkarnir sem skipuðu meiri hluta alþingis hrærðu hvorki legg né lið. Frumvarpið var eins og munaðarleysingi. Við fórum nokkur saman óbreyttir borgarar á rútu hringinn í kringum landið dagana fyrir kosninguna til að kynna frumvarpið, en aðrir fundir voru varla haldnir opinberlega. Þingið var eins og áhugalaus risaeðla. Kjósendur skynjuðu þetta og tryggðu frumvarpinu yfirburðasigur þar sem 67% lýstu sig fylgjandi því. Og þá — þá! — var skipulögð heil fundaröð í hátíðasal Háskóla Íslands um kosti og meinta galla nýsamþykktrar stjórnarskrár. Enn liggur hún grafin í skúffum Alþingis.

Nýjasta dæmið er frá 2024 þegar þrír ríkisstjórnarflokkar reyndu að gera forsætisráðherra sinn, Katrínu Jakobsdóttur, að forseta Íslands. Fólkið reis upp og kaus heldur Höllu Tómasdóttur.

Þið sjáið munstrið.

Nú hamast elítan með fv. forseta Íslands í broddi fylkingar og hugsanlega jafnvel meiri hluta Alþingis í liði gegn því að Íslendingar megi ljúka samningaviðræðunum við ESB sem Alþingi samþykkti að hefja 2009 og nýtt Alþingi lagði á ís 2013. Tilgangurinn með þjóðaratkvæðagreiðslunni er sá einn að heimila stjórnvöldum að freista þess að ná samningi sem hægt verður að leggja fyrir þjóðina í nýrri þjóðaratkvæðagreiðslu til samþykktar eða synjunar. Það er allt og sumt.

Ég vænti þess að munstrið haldi og fólkið í landinu beri sigurorð af elítunni einnig að þessu sinni.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: