Erna Mist listmálari skrifaði grein í Mogga dagsins í dag. Greinin er góð og fer hér á eftir. Leyfði mér að breyta um fyrirsögn:

„Í síðustu þingkosningum kallaði formaður Miðflokks eftir því að menn færðu sig úr „umbúðapólitík“ yfir í „innihaldspólitík“, en nú þegar þjóðin kýs um það hvort pakkinn verði opnaður er eins og orð hans hafi varpað frá sér bókstaflegri merkingu og umbreyst í tilvistarlegt ljóð sem hýsir einhvern frumspekilegan sannleik um eðli stjórnmála og þeirra sem stunda þau.
Miðflokkurinn er auðvitað að keppast um sömu styrktaraðilana og Sjálfstæðisflokkur og Framsókn, sem er enginn glæpur heldur pólitík eins og hún gerist hagkvæmust. Það er hagkvæmt að velja sér ríkasta hagsmunahópinn til að berjast fyrir, og auðvitað myndi þessi hagsmunahópur ekki snerta möguleikann á nokkurs konar breytingu á því fjárhagslega fyrirkomulagi og stjórnkerfislegu fullvissu sem tryggir þeim toppsætið í stigveldi samfélagsins með priki. Þá er öruggara að lýsa yfir þjóðarógn í hvert sinn sem einhver bendir á samtökin sem kenna sig við heimsálfuna sem við tilheyrum.
…tækifærismennskan er óflokksbundin.
Líkt og hægriflokkar í stjórnarandstöðu þurfa Sósíalistar og Vinstri-grænir að segja nei til að aðgreina sig frá vinstriflokkunum í ríkisstjórn, óháð því hverju kjósendur þeirra kalla eftir. Við búum kannski við fulltrúalýðræði, en tækifærismennskan er óflokksbundin. Það er lítið mál að taka afgerandi afstöðu til spurningar sem býður upp á tvö andhverf svör. Það eina sem þarf er sannfæring, og það er auðvelt að rökstyðja hvaða sannfæringu sem er. Maður þarf bara ástæður, og ástæður fyrir öllu mögulegu liggja á víð og dreif um þann veruleika sem umlykur mann hverju sinni. Hvað leynist raunverulega í kassanum veit enginn og allir í senn, svo hvers vegna að opna hann?
Persónulega finnst mér innganga í Evrópusambandið ekki aðlaðandi tilhugsun, en hún kemst ekki nálægt því að vera jafn fráhrindandi og forræðishyggja þeirra sem vilja hrifsa af mér valmöguleikann. Það þarf ekki háskólapróf í viðskiptafræði til að sjá hag sinn í því að velja valfrelsi fram yfir ótímabæra höfnun á valkostum.
Ólíkt þingmönnum fáum við ekki borgað fyrir að þröngva skoðunum okkar í flokkadrætti, svo af hverju lætur annar hver maður eins og hann sé á launum við að hrópa nei eða já? Auðvitað er það hlutverk íhaldsins að gera róttækar breytingar á stjórnkerfinu eins erfiðar og hægt er; að vera loftþétt sía sem hleypir engu í gegn án þess að ræða það til hlítar – en það er óþarfi að drepa köttinn aftur og aftur áður en hann deyr. Það má tortryggja hvað sem er eða sveipa það draumsýn – en til að finna fyrirbærinu endanlega mynd þarf einfaldlega að opna kassann. Þegar stjórnmálamenn sjá ekki lengur muninn á þjóðaratkvæðagreiðslu og kosningabaráttu verður þjóðin einfaldlega að leiða raunveruleikasjónvarpið hjá sér og opna kassa Schrödingers.“