Alþingi: Geir heitinn Gunnarsson var þingmaður fyrir Alþýðubandalagið. Hann þótti traustur í sínum verkum. Árum saman sat hann í fjárveitnganefnd, sem nú nefnist fjárlaganefnd.
Umæður voru um fjárlög næsta árs. Alþýðubandalagið var í stjórnarandstöðu og báru sig vel með fjárlagafrumvarpið og hældust um með sín hallalausu fjárlög.
Geir steig í pontu Alþingis og sagði að sér þætti nóg um hversu hrifnir stjórnarsinnar voru. Geir sagði; að kvöldi skal dag lofa, mey að morgni og fjárlög að ári.