- Advertisement -

Að slá Íslandsmet í bulli

Kolbrún Berþórsdóttir skrifar að venju á dv.is. Greinin hennar að þessu sinni beinist gegn NEI-sinnum. Hér á eftir er lokaþáttur greinarinnar:

„Þegar stjórnmálamenn haga málflutningi sínum eins og stjórnarandstaðan gerir þá er afar auðvelt að missa virðingu fyrir þeim. Vissulega eru í liði stjórnarandstæðinga rólyndir einstaklingar sem ganga æsingnum ekki á hönd, en þeir mega sín lítils þegar herópið er að allt sé leyfilegt í þágu málstaðarins og enginn megi skorast undan.

Stjórnarandstaðan glataði virðingu þegar hún barðist við að setja Íslandsmet í málþófi. Nú sýnir hún að hún hefur ekkert lært af þeim skelfilega afleik sínum. Enn sem fyrr er hún svo upptekin í baráttu sinni fyrir hin ofsaríku hagsmunaöfl í landinu að henni finnst í góðu lagi að afbaka hluti og jafnvel ljúga.

Sjálfstæðisflokkurinn getur ekki lengur hrópað: Stétt með stétt! Ropaði hann því slagorði upp úr sér yrði hlegið að honum. Framsóknarflokkurinn hefur nákvæmlega ekkert fram að færa annað en afturhaldssemi og ótta við nútímann. Miðflokkurinn heillar Trumpista landsins en enginn vill vinna með honum – meira að segja Sjálfstæðisflokkurinn hikar við það.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Á síðasta ári sló stjórnarandstaðan Íslandsmet í bulli. Nú er hún að endurtaka leikinn með baráttu sinni fyrir nei-inu og sýnir sínar verstu hliðar. Ekki er það geðsleg sjón.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: