Fréttir

Aðalsteinn vill leiða Viðreisn

By Miðjan

December 15, 2025

Facebook: Aðalsteinn Leifsson skrifaði:

Kæru vinir, ég gef kost á mér til að leiða framboð Viðreisnar (til sigurs!) í komandi kosningum í Reykjavík. Ég verð í launalausu leyfi frá utanríkisráðuneytinu. Ég býð mig fram því það er ákall um breytingar í Reykjavík. Byggjum upp húsnæði sem fólk vill og getur keypt, tryggjum aðgang að leikskóla og annarri nauðsynlega þjónustu, búum til betra skipulag og styrkjum skólana okkar. Og sköpum bestu aðstæður fyrir atvinnulíf til að blómstra. Þú getur skráð þig í Viðreisn hér ef þú ert löngu búin(n) að því