Mynd: Saifee Art/Unsplash.com.

Greinar

Ævarandi hatur á Bandaríkjunum

By Miðjan

March 12, 2026

Umræðan: Guðmundur Andri Thorsson skrifaði:

„Með árásum sínum á Íran hafa Bandaríkjamenn, undir forystu Netanyahu, náð þeim árangri að koma til valda strangtrúarmanni sem misst hefur föður, eiginkonu og börn af völdum árásarmanna og hugsar þeim örugglega þegjandi – og æpandi – þörfina og hefur engu að tapa, vís til alls.

Í samræmi við þann sið Ísraelsmanna á Gaza að einbeita sér sérstaklega að barnamorðum, tryggðu sprengjur Bandaríkjamanna ævarandi hatur írönsku þjóðarinnar á Bandaríkjunum með því að varpa sprengjum á stúlknaskóla og drepa svo foreldrana líka. Neita síðan öllu saman, þrátt fyrir augljós ummerki.

Þriðji árangurinn sem þessar aðgerðir hafa skilað er svo olíuverð upp úr öllu valdi um allan heim og kemur sér ekki síst illa í BNA þar sem ríkir nánast bann við annarri orkunotkun en olíu.

Svo eru til menn hér á landi sem vilja að Íslendingar bindist Bandaríkjunum nánari böndum.“