Mynd: Hongbin/Unsplash.com.

Fréttir

Áfram 1,75 prósenta stýrivextir

By Miðjan

September 27, 2026

ff7.is:

Í takt við væntingar greinenda ákvað sænski seðlabankinn að halda stýrivöxtum sínum óbreyttum í 1,75 prósentum. Það eru þó hækkanir í kortunum í byrjun vetrar ef spár um verðbólgu og hagvöxt reynast réttar.

Við vaxtaákvörðunina fyrir mánuði gaf peningastefnunefnd sænska seðlabankans út að ein vaxtahækkun fyrir áramót væri líkleg.

Stýrivextir í Svíþjóð voru 4 prósent í apríl 2024 en hafa síðan þá lækkað jafnt og þétt en verið óbreyttir í 1,75 prósentum síðastliðna 12 mánuði.

Eftir tilkynningu sænska seðlabankans í morgun styrktist sænska krónan lítillega en hún hefur veikst töluvert að undanförnu.