Allir leggist á eitt
„Stjórn VR kom saman til fundar í gærkvöldi og fór yfir stöðuna vegna komandi forsendubrests kjarasamninga. Við skipuðum viðræðunefnd og sendum frá okkur ályktun þar sem fram kemur að verði ekkert aðhafst af hálfu stjórnvalda og atvinnurekenda geti reynst óhjákvæmilegt að segja upp kjarasamningum. Stjórnin og viðræðunefndin munu leggja sitt af mörkum til að stuðla að því að kjarasamningar geti haldið, en þá verða allir að leggjast á árarnar, ekki bara launafólk,“ skrifar Halla Gunnarsdóttir formaður VR.