Almannatryggingakerfið er orðið 90 ára og orðið ansi þreytt, stagbætt og bútasaumaður öldungur
Guðmundur Ingi Kristinsson, utan flokka, sagði:
Hér á eftir er upphaf ræðu Guðmundar Inga Kristinssonar:
Komugjöld vegna
heilbrigðisþjónustu
hafa hækkað.
„Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er gert ráð fyrir að fjármögnun í velferðar- og heilbrigðismálum náist fyrst og fremst með aga í ríkisfjármálum, breytingum á skattkerfinu og aukinni skilvirkni. Almannatryggingakerfið er orðið 90 ára og orðið ansi þreytt, stagbætt og bútasaumaður öldungur. Keðjuverkandi skerðingar í lífeyrislaunum eru of miklar og því miður ná þær oft út yfir dauða og gröf. Nú er kominn tími á að þetta háaldraðra 90 ára gamla kerfi fái varanlega hvíld og að tekið verði upp nýtt og sanngjarnt og mannúðlegt kerfi sem allir skilja; kerfi þar sem aldraðir og öryrkjar verða ekki fyrir afturvirkum skerðingum, ekki bara yfir í félagslega kerfið heldur einnig eftir andlát. Gleymum ekki að við erum með kerfi þar sem á einu ári 61.000 einstaklingar af 85.000 einstaklingum fengu rangt greitt. Það er ekki í lagi og því verðum við að breyta.
En hvað með þá sem verst standa fjárhagslega í almannatryggingakerfinu? Stefna ríkisstjórnarinnar er að vernda þá og sjá til þess að hækkanir í heilbrigðiskerfinu og á öðrum nauðsynjum verði ekki til þess að viðkomandi neiti sér um lífsnauðsynlega þjónustu vegna efnahags. Ég veit að stefna ríkisstjórnarinnar er að vernda þennan hóp og það verðum við sérstaklega að gera. Komugjöld vegna heilbrigðisþjónustu hafa hækkað og nýjum komugjöldum í sjúkraþjálfun hefur verið komið á. Með því stefna því miður þeir verst settu í það að þurfa að neita sér um þessa þjónustu. Afleiðingarnar verða þær að viðkomandi endar á sjúkrastofnun, sem er versti kosturinn og langdýrastur. Er ekki kominn tími til þess t.d. að tekjutengja þennan kostnað? Ég væri ekki í þessum ræðustól hér án sjúkraþjálfunar einu sinni í viku. Ég borga 1.000 kr. í komugjöld á mínum launum, sem er það sama og aldrað fólk á lágmarkslífeyri borgar. Mér finnst þetta ekki sanngjarnt því að þeir sem eru á lægstu laununum og lífeyri eiga að fá frítt. Þeir sem hafa efni á því að borga eiga t.d. að borga stighækkandi miðað við tekjur. Það sama má segja um sektir vegna umferðarlaga. Hvers vegna eru þær ekki tekjutengdar? Ef sekt á að bíta alla jafnt er það eina leiðin.“