Stjórnmál

Alþingi hefur brugðist þjóðinni

By Miðjan

May 07, 2025

„Alþingi hefur brugðist í því að tryggja þjóðinni eðlilegan arð af sjávarauðlindinni. Þetta var meðal annars það sem ég sagði í ræðum löngu tímabæra hækkun veiðigjalda á Alþingi í gær, “ skrifar Dagur B. Eggertsson Samfylkingu.

Stjórnarandstaðan hefur talað mikið um áhrif þess að samþykkja lögin um veiðigjöld – og haft af því áhyggjur. Það er sjálfsögð umræða. En mér finnst miklu mikilvægara að ræða hvaða áhrif það hefur ef við leiðréttum þetta ekki? Ef við tökum okkur ekki stöðu með þjóðinni og tryggjum henni eðlilegan og miklu stærri hlut af arðinum af auðlidinni. Og það verður best gert með uppboði aflaheimilda.

Um þetta fjallaði sem sagt þessi ræða – og ýmislegt fleira – sem fékk satt best að segja mikil viðbrögð (og já, ég hélt það væri ekkert horft á Alþingisráðsina) og rataði í fréttir Stöðvar 2.

Ræðan í heild er hér.