- Advertisement -

Áróðursmeistari á háum ríkislaunum

Sigurjón Magnús Egilsson:

Ólíkt hafast þeir að, forsetarnir fyrrverandi. Guðni Th. Jóhannesson virðir skoðanir hvers og eins og tala af sanngirni og yfirvegun. Ólafur Ragnar gerir það alls ekki. Hann fellur í áliti hjá mörgum og hann dregur gráa yfirbreiðslu yfir eigin feril.

Einna merkilegast er að fylgjast með framgöngu forsetans fyrrverandi Ólafs Ragnars Grímssonar. Hann hikar ekki við að eyða innistæðu sinni meðal þjóðarinnar í endalausan áróður – gegn fólki jafnt sem málefnum.

Nýverið hóf hann ósanngjarna og órökstudda aðför að heilindum Þorgerðar Katrínar utanríkisráðherra. Sakar hana um að hafa breytt utanríkisráðuneyti Íslands í kosningabúllu fyrir skoðunum ráðherrans. Þessi trúar fáir og sennilega ekki sjálfur Ólafur Ragnar.

Ólafi Ragnar hafði fengið „fyrirgefningu“ eftir áralangt dekur hans við bankagangsterana og þeirra fylgihnetti. Innistæða hans var svo sem ekki stór en henni hefur hann kosið í órökstuddar fullyrðingar í baráttunni til þess að þjóðin hafni að farið verði í aðildarviðræður við Evrópusambandið.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Ólíkt hafast þeir að, forsetarnir fyrrverandi. Guðni Th. Jóhannesson virðir skoðanir hvers og eins og tala af sanngirni og yfirvegun. Ólafur Ragnar gerir það alls ekki. Hann fellur í áliti hjá mörgum og hann dregur gráa yfirbreiðslu yfir eigin feril.

Þetta gerir hann launþegi hárra ríkislauna og þarf ekki að hafa áhyggjur af eigin fjárhagsstöðu. En ætti að hafa áhyggjur af siðferðilegri stöðu fyrrverandi forseta til tuttugu ára.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: