Greinar

Áslaug Arna kveður Alþingi – sem greiddi henni milljónir króna í námsfríinu

By Miðjan

June 03, 2026

Stjórnmál:Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir er hætt þingmennsku. Mætti til þings í morgun og sagði af sér þingmennsku. Heimildin birti frétt um þinglok Áslaugar Örnu og að Alþingi hafi greitt 3,1 milljón meðan hún var í námsleyfi vestur í Bandaríkjunum.

Hér eru kveðjuorð Áslaugar Örnu:

Það er gott að vera komin heim. Á Alþingi þar sem reglur samfélagsins verða til. Þar sem við spyrjum hvernig við gerum betur fyrir fólkið okkar. Tryggjum öryggi, frelsi og farsæld í landi sem er ríkt af tækifærum, auðlindum og mannauði. Það er ekki sjálfsagt að fá tækifæri til að taka þátt í því.

Nýverið fóru fram glæsilegar sveitarstjórnarkosningar þar sem Sjálfstæðisflokkurinn vann sterka sigra um allt land. Það gerðist ekki af tilviljun heldur vegna þess að hugmyndafræðin um frelsi, ábyrgð, framtak og trú á einstaklinginn á enn sterkt erindi. Sú hugmyndafræði höfðaði líka til mín þegar ég var yngri. Hún kveikti neista og hún kallaði mig til verka.

Árið 2015, þá 24 ára gömul, fór ég í viðtal þar sem ég talaði um að stjórnmálin þyrftu að vera opnari fyrir ungu fólki og nýjum hugmyndum. Ég sagði þá, orðrétt: „Alþingi ætti að vera eftirsóknaverður staður til að starfa á í nokkur ár, en síðan á maður að geta farið annað. Við eigum að hætta að horfa á stjórnmál sem ævistarf.“

Ári síðar var ég kjörin á þing. Og nú eru liðin tíu ár. Ég hef gefið stjórnmálunum öll mín fullorðinsár. Ég hef fengið þann heiður að vera þingmaður Reykvíkinga, sitja í forystu Sjálfstæðisflokksins, gegna embætti dómsmálaráðherra og síðar háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Ég hef gefið mig alla í verkefnin. Lært, þroskast og kynnst fólki um land allt. Ég hef séð styrkinn í íslensku þjóðinni. Séð hvað gerist þegar frelsi, ábyrgð og tækifæri fara saman. Og með því að fara frá Íslandi um tíma áttaði ég mig líka á öðru: að reynslan sem ég hef öðlast hér inni getur líka nýst á öðrum vettvangi.

Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi.

Ég hef ákveðið að láta af þingmennsku. Ég geri það með þakklæti í hjarta og trú á framtíðina.

Ég kveð Alþingi, en ég kveð ekki hugsjónirnar. Ég kveð þingmennsku, en ekki viljann til að leggja mitt af mörkum.

Þakklæti er mér efst í huga á þessari stundu. Frá mínum dýpstu hjartarótum vil ég þakka samstarfsfólki, Sjálfstæðismönnum sem veittu mér tækifærið og starfsfólki Alþingis fyrir samfylgdina. Ég vil þakka stuðninginn, hvatninguna, vinnuna og gleðina síðustu ár.