- Advertisement -

Ástæðulaust að vorkenna bönkunum

Alþingi:

Ásthildur Lóa Þórsdottir Flokki fólksins sagði á Alþingi í dag:

Ætli staðan sé
ekki svipuð í dag?

„Margir hafa lýst yfir miklum áhyggjum af bönkunum undanfarið og hvernig í ósköpunum þeir eigi að geta staðið undir smávægilegri hækkun á svokölluðum bankaskatti. Í tíð fyrri ríkisstjórnar árið 2020 var bankaskatturinn lækkaður úr 0,38% í 0,15% sem var 61% lækkun. Samkvæmt skýrslu sem þáverandi menningar- og viðskiptaráðherra lét gera árið 2023 kom skýrt fram að lækkunin skilaði sér alls ekki í betri kjörum til almennings. Skýrslan nær yfir árin 2018–2022 og leiddi m.a. í ljós að vaxtamunur hélst svo til óbreyttur á tímabilinu og lækkaði aðeins um 0,1 prósentustig, að vaxtamunur íslensku bankanna var um 69% hærri en hjá öðrum bönkum á Norðurlöndunum, að rekstrarkostnaður bankanna lækkaði sem hlutfall af tekjum um heil 12 prósentustig auk þess sem rekstrarkostnaður þeirra sem hlutfall af heildareignum lækkaði líka úr 2,2% í 1,6%, að kostnaðarhlutföll íslensku bankanna voru með þeim lægstu meðal banka á Norðurlöndunum, að arðsemi undirliggjandi rekstrar árið 2022 hafi ekki verið meiri frá árinu 2008 og að ávinningur eiganda af rekstrinum jókst um heil 66%.

Ætli staðan sé ekki svipuð í dag? Ef bara er litið til síðustu tveggja ára þá högnuðust bankarnir um 88 milljarða árið 2024 og 94 milljarða árið 2025. Bara á þessum tveimur árum var samanlagður hagnaður bankanna heilir 182 milljarðar, þ.e. um 450.000 kr. á hvern einstakling eða nær 2 milljónir á hverja fjögurra manna fjölskyldu. Með hvaða rökum ættu þeir eiginlega að réttlæta að velta 0,25% af bankaskatti yfir á neytendur? Það væri algjört siðferðilegt gjaldþrot að mínu mati. Það er engin ástæða til að vorkenna bönkunum. Ef eitthvað myndi ég vilja hækka bankaskattinn enn meira.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: