Stjórnmál

Atkvæði greitt Samfylkingunni er atkvæði um óbreytt ástand

By Miðjan

May 16, 2026

Kosningar: Benedikt Jóhannesson, stofnandi Viðreisnar, skrifaði á Facebook:

„Ég verð að játa að mér finnst svolítið fyndið að sjá vini mína í Samfylkingunni hneykslast á því að nú sé tímabært að gefa Samfylkingunni frí frá stjórnun borgarinnar. Auðvitað sjá þau ástandið sjálf.

Í prófkjöri sóttu þau Sjálfstæðismann, ágætis mann, en reynslulausan og skoðanalítinn, til þess að fella eigin borgarstjóra. Hann sagði reyndar í umræðum í gær: „Nú ætla ég ekki að fara að verja hvað er búið að gerast í borginni hingað til. Það verða breytingar í framtíðinni.“ Pétur sér þetta líka.

En þótt Pétur vilji breytingar situr hann uppi með gamla borgarstjórnarhópinn. Þess vegna er atkvæði greitt Samfylkingunni atkvæði um óbreytt ástand.

Ég er ánægður með að Björg vilji ekki vinna með Miðflokknum, flokki sem spilar á fordóma og óvild í garð ákveðinna hópa.

Þess vegna er Viðreisn eini flokkurinn sem getur tryggt breytingar og ábyrga stjórn borgarinnar, án öfga eða stöðnunar.

Atkvæði greitt Viðreisn er atkvæði greitt farsælli framtíð Reykjavíkur.“