Mynd: mbl.is/Þórður.

Fréttir

Átti að sviðsetja handtöku á Jóni Ásgeiri

By Miðjan

November 07, 2026

Davíðstíminn:

Jóhann R. Benediktsson, fyrrverandi sýslumaður á Keflavíkurflugvelli segir frá í dv.is.

„Jóhann R. Benediktsson, fyrrverandi sýslumaður á Keflavíkurflugvelli segist hafa verið undir þrýstingi að handtaka Jón Ásgeir Jóhannesson eftir lendingu á Keflavíkurflugvelli í ágúst árið 2002. Ætti að setja hann í járn fyrir framan myndavélar sjónvarpsstöðvanna. Það hafi hann neitað að gera og lýsti vanþóknun sinni á.

„Þetta hefur alla tíð setið í mér,“ segir Jóhann í nýrri bók Reynis Traustasonar og Jóns Trausta Reynissonar um Davíð Oddsson, Davíðstíminn: Sjálfstæð saga leiðtoga og lands.

Baugsmálið er fyrirferðamikið í bókinni og meðal annars er fjallað um uppákomu í ágúst árið 2002. Það er þegar Jón Ásgeir sneri heim frá London til þess að mæta í skýrslutöku í samhengi við rannsóknina á Baugi.

Símtal frá RÚV

Lögreglan hafði krafist þess að Jón Ásgeir mætti í skýrslutöku og hann sagðist koma daginn eftir ásamt konu sinni Ingibjörgu Pálmadóttur. En þá upphófst sérstök atburðarás eins og greint er frá.

Lögreglumönnum hjá embætti sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli barst erindi um að handtaka Jón Ásgeir við komuna til landsins eins og Jóhann lýsir. Það er að hann hafi fengið að heyra þetta frá undirmönnum sínum og orðið mjög undrandi. Hafi hann ekki vitað annað en að Jón Ásgeir væri að mæta af fúsum og frjálsum vilja til að gefa skýrslu.

Jóhann kom þeim skilaboðum til efnahagsbrotadeildar að þetta erindi yrði að berast skriflega. En það næsta sem gerðist var að fréttastofa RÚV hafði samband og bað um að hafa tökulið á staðnum. Hafði fréttastofan fengið veður af því að Jón Ásgeir yrði handtekinn við komuna til Íslands.“

„Ég hváði við og nefndi að maðurinn væri að koma til að vera við yfirheyrslu,“ segir Jóhann. „Það rann upp fyirr mér ljós þegar ég hugsaði til samtalsins á Þingvöllum þar sem ríkislögreglustjóri [Haraldur Jóhannessen] nefndi við Davíð [Oddsson, forsætisráðherra] að þessi aðgerði stæði fyrir dyrum.“

Hönnuð atburðarás

Ákvað Jóhann samstundis að embætti hans myndi ekki taka þátt í að setja upp þessa handtöku. Fékk hann óbragð í munninn og minntist þess þegar Björgólfur Guðmundsson var leiddur inn í sakadóm í Hafskipsmálinu, myndskeið sem var ítrekað sýnt í sjónvarpi.

„Mér varð ljóst að þarna ætti að taka mann af lífi fyrir fram og ákvað að spyrna við fótum,“ segir Jóhann. Verið væri að hanna atburðarásina. „Ég ætlaði ekki að brenna mig á því að taka þátt í slíku og sagði undirmanni mínum að gera kröfu um að beiðnin um handtöku yrði borin fram skriflega.“

Jóhann neitaði Elínu Hirst varafréttastjóra RÚV um beiðnina og sagði að tökuliði yrði ekki hleypt inn á svæðið. Ekki væri vitað hvort hann myndi koma og ef hann yrði handtekinn yrði það ekki gert fyrir framan sjónvarpsmyndavélar.

Jón Ásgeir fékk einnig veður af því hvað kynni að gerast við komuna til Íslands í gegnum Ellisif Tinnu Víðisdóttur, lögfræðingi og systur aðstoðarkonu Ingibjargar, sem hafði blöskrað það sjónarspil sem var verið að reyna að búa til hjá ríkislögreglustjóra.

Breytti flugi

Í kjölfarið mættu Jón Ásgeir og Ingibjörg ekki í áætlunarflugið til Keflavíkur heldur leigðu einkavél sem lenti á Reykjavíkurflugvelli. Gekk Jón Ásgeir frjáls maður til yfirheyrslu hjá efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra.

„Sem lögreglustjóri hélt ég mig við ákveðnar grundvallarreglur. Við handtókum gjarnan hin verstu illmenni en aldrei hvarflaði að okkur að leyfa myndatökur undir þeim kringumstæðum,“ segir Jóhann. „Við vissum að menn áttu fjölskyldur og aðstandendur og vildum ekki valda þeim óþarfa harmi. Ef stóð til að handtaka grunaða menn á heimilum sínum þá lét ég vakta heimilin til að kanna hvort þar væru börn. Við reyndum að haga málum þannig að þau yrðu ekki vitni að svo harkalegum aðgerðum eins og handtöku.“