Stjórnmál:
Arnar Þór Jónsson lögmaður skrifaði:
„Alþingi Íslendinga
B.t. stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar
Vísað er til erindis dags. 17. október sl. sem sent var f.h. Þjóðfrelsis til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis með áskorun til Alþingis um rannsókn á mögulegri ábyrgð sitjandi utanríkisráðherra, einkum samkvæmt 8. gr. laga nr. 4/1963, og á mögulegum brotum gegn sjálfsforræði íslenska ríkisins. Með erindinu var kallað eftir því að Alþingi sinni lögbundnu eftirlitshlutverk sínu og taki erindið til efnislegrar meðferðar í samræmi við lög. Af hálfu Alþingis hefur móttaka erindisins verið staðfest með tölvupósti frá ritara stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar 19.10. sl. Enn hefur nefndin þó ekki orðið við þeirri beiðni sem fram kemur í niðurlagi tilvísaðs erindis, þ.e. að upplýsa um þann farveg sem því verður beint í. Því er sú ósk hér með ítrekuð.
Samhliða er háttvirtum nefndarmönnum bent á viðbótarupplýsingar um leynileg fundahöld utanríkisráðherra með stækkunarstjóra ESB, nánar tiltekið í fyrstu utanlandsferð sinni sem utanríkisráðherra þar sem hún fundaði með stækkunarstjóra ESB í Brussel 15. janúar 2025, sbr. gögn sem komu fram í dagsljósið ári síðar fyrir tilstuðlan utanríkismálanefndar Alþingis, en samkvæmt framkomnum upplýsingum liggur að síðastgreindan dag fundaði utanríkisráðherra Íslands með Mörtu Kos, stækkunarstjóra Evrópusambandsins án þess að um þann fund hafi verið getið í fréttatilkynningu utanríkisráðuneytisins sem tilgreindi aðeins fundi ráðherrans með Köju Kallas, utanríkismálastjóra ESB, og Maroš Šefčovič, viðskiptamálastjóra ESB.
Í nýútkominni bók Björns Bjarnasonar, fyrrv. ráðherra, er atburðarásin skilmerkilega rakin og m.a. bent á að meðan utanríkisráðherra var enn í Brussel hafi Guillaume Mercier, talsmaður stækkunarstjórans, sagt í samtali við RÚV að framkvæmdastjórn ESB liti enn á Ísland sem umsóknarríki.
Sú afstaða hafi einnig komið fram í tilkynningu ESB um heimsóknina, þar sem tilgreint var að umsókn Íslands væri „enn talin virk þar sem hún hefði aldrei verið formlega afturkölluð.“ Í þessu ljósi er enn ríkari ástæða til þess að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd taki embættisathafnir utanríkisráðherra til nánari skoðunar m.t.t. þess nána samráðs sem virðist hafa verið milli utanríkisráðherra Íslands og æðstu embættismanna ESB allt frá janúarmánuði 2025. Sérstaklega er brýnt að þetta sé kannað með hliðsjón af því hvort nokkrar vísbendingar séu um að samráðherrar utanríkisráðherra í ríkisstjórn Íslands hafi verið upplýstir um það samráð, en fyrir liggur að hvergi var orði vikið að ESB í stefnuræðu forsætisráðherra 10. febrúar 2025.
Þess er óskað að móttaka tölvupósts þessa verði staðfest og upplýst um þann farveg sem erindi umbj.m. verður beint í.
Virðingarfyllst, f.h. Þjóðfrelsis, Arnar Þór Jónsson lögmaður.“