Ólafur Þórarinnson, Labbi í Mánum, skrifaði þennan fína pistil:
Þrátt fyrir betri áferð og fögur fyrirheit hróflar þessi ríkisstjórn ekki við skatta og útsvarsfríðindum auðjöfra og braskara og þar með þeirri glötuðu efnahagsstjórnun að láta skuldugt barnafólk, leigendur og aðra sem berjast í bökkum borga óráðsíu græðgisaflanna til að halda stöðugleika þó allir viti að einmitt þetta fólk á engan þátt í verðbólgunni.
Það er vel passað upp á að minnast aldrei á að gjörsamlega óhæfur seðlabankastjóri fái þvert á ráð óspilltra hagfræðinga að halda vöxtum í himinhæðum og handstýra genginu svo vissir aðilar græði á tá og fingri (spilling) meðan hinir borgi brúsann. Þessi ógeðsöfl virðast alltaf geta komið krumlunum í stjórn fjármála landsins til að passa sitt og viðhalda óréttlætinu og eigin auðsöfnun.