- Advertisement -

Auðvaldið dauðrotar Moggann

Sigurjón Magnús Egilsson skrifar:

Sú stund mun koma að auðvaldið hættir að moka peningum í Moggann, sem á þá sér varla viðreisnar von. Í raun er auðvaldið og einangrunarsinnar að dauðrota Moggann.

Mogginn berst hálfdauður fyrir lífi sínu. Ef ekki væri fyrir endalausan fjáraustur auðvaldsins væri Mogginn farinn sömu leið iog önjur dagblöð Íslendinga. Mogginn er eins ófrjáls og hugsast getur. Það er af augljósri ástæðu sem borgaðar eru ótrúlegar fjárhæðir til að halda Mogganum á lífi. En er þetta nokkuð líf?

Nei, auðvitað ekki. Að ritstjórnin búi við að þramma áfram að vilja stórgreiðendanna. Það er ekki að ástæðulausu sem peningum er dælt í Hádegismóanna. Áfram skal barist. En fyrir hverju?

Jú, að koma í veg fyrir að Íslendingar kjósi með því að haldið verði áfram með samningaviðræður við Evrópusambandið. Einangrunarsinnar berjast sem mest þeir geta. Þar er Mogganum ætlað stórt hlutverk. Greinar og fréttaskrif hálffylla blaðið dag eftir dag. Fullyrða má að þrátt fyrir allt sem reynt er mun Mogginn ekki ná að snúa einum einasta frá því að segja JÁ í kosningunum seinna í ágúst.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Sú stund mun koma að auðvaldið hættir að moka peningum í Moggann, sem á þá sér varla viðreisnar von. Í raun er auðvaldið og einangrunarsinnar að dauðrota Moggann.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: