Umræða: Heimildin er með fína fréttaskýringu um hvernig kjörnir bæjarfulltrúar í Hafnarfirði hafa komið krumlunum fyrir í peningum bæjarsjóðs. Mál sem þarfnast skýringar:
Fyrirsögn Heimildarinnar er svona: „Greiddu fyrrverandi oddvita 7 milljónir eftir að Framsókn fékk bæjarstjórastólinn“. (Langar að segja frá fyrirsögninni sem mig langaði mest að skrifa: Með krumlurnar á kafi í bæjarsjóði Hafnarfjarðar.)
Hér er upphaf fréttaskýringarinnar: „Nýstofnað félag Ágústs Bjarna Garðarssonar, fyrrverandi oddvita Framsóknarflokksins í Hafnarfirði, fékk greiðslur fyrir ráðgjafastörf eftir að flokksbróðir hans, Valdimar Víðisson, tók við sem bæjarstjóri. Ráðgjafastörf fyrrum bæjarstjóra Mosfellsbæjar, Haraldur Sverrisson, hófust í tíð Rósu Guðbjartsdóttur, flokkssystur hans.
Félag í eigu fyrrum oddvita Framsóknarflokks í bæjarstjórn fékk tæpar 7 milljónir króna fyrir ráðgjafastörf fyrir Hafnarfjarðarbæ á árinu 2025. Pólitískur samherji hans var þá nýtekinn við sem bæjarstjóri.
Í svari Hafnarfjarðarbæjar við fyrirspurn Heimildarinnar kemur fram að Valdimar Víðisson bæjarstjóri hafi falið Ágústi Bjarna Garðarssyni, fyrrum oddvita Framsóknarflokks í bæjarstjórn, að vinna verkefni fyrir bæinn. „Leitað var til Vissu ráðgjafar ehf. vegna afmarkaðra verkefna í Hafnarfirði í ljósi reynslu eiganda, Ágústs Bjarna Garðarssonar, af opinberri stjórnsýslu og þekkingar á sveitarstjórnarstiginu, ekki síst í Hafnarfirði.“
Þá hefur Haraldur Sverrisson, fyrrverandi bæjarstjóri Mosfellsbæjar fengið tæpar 19 milljónir króna í ráðgjafagreiðslur frá 2023 út september 2025 en Rósa Guðbjartsdóttir, samflokkskona hans og nú þingmaður Sjálfstæðisflokks, var bæjarstjóri Hafnarfjarðar þegar hún undirritaði samning við Harald.“
Framhaldið er einungis fyrir áskrifendur Heimildarinnar. Hana er hægt að kaupa á heimildin.is.