Fréttir

Banaslys á Hvolsvelli

By Miðjan

January 02, 2026

Kona á fertugsaldri lést þegar vörubíl var ekið yfir hana á bílaplani Sláturfélags Suðurlands á Hvolsvelli að kvöldi 30. desember. Vísir greinir frá.

Lögregla fékk tilkynningu um slysið rétt fyrir miðnætti að kvöldi þriðjudagsins 30. desember. Konan var flutt á sjúkrahús þar sem hún var úrskurðuð látin.

Málið er rannsakað sem slys og hefur enginn verið handtekinn.

Ekki liggur fyrir hvort konan sem lést var íslensk eða erlend.