Kjarnyrt:
Ný grein eftir Þórð Snæ Júlíusson:
„Stóru bankarnir þrír högnuðust um 79 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum ársins og greiddu eigendum sínum rúma 94 milljarða króna á sama tíma. Arðsemin er meiri en stefnt var að og tekjurnar eru aðallega vegna vaxta. Þeir láta samt eins og sex milljarða króna hækkun á bankaskatti sé þeim óbærileg byrði.
Síðast þegar skatturinn var lækkaður þá stungu bankarnir öllu í vasann en þegar það á að hækka hann aðeins eiga heimilin og fyrirtækin í landinu að borga.
Það er óþarfi að hræðast þennan barlóm. Hann er innistæðulaus. Bankarnir geta vel greitt meira í samneysluna án þess að það íbúar landsins þurfi að bera kostnað. Þeir bara vilja það ekki.“