Greinar

Barist um Ólaf Ragnar

By Miðjan

May 11, 2026

Stjórnmál: Álfhildur Leifsdóttir, sem hefur setið í bæjarstjórn Skagafjarðar, fyrir Vinstri græn, skrifar á Facebook:

„Ég hvet öll þau sem ætla að mæta á kjörstað í lok ágúst og kjósa um áframhaldandi viðræður um aðild að Evrópusambandinu að hlusta á þetta viðtal við Ólaf Ragnar Grímsson í hlaðvarpsþættinum Chess after dark.

Ólafur Ragnar tekur nokkur raundæmi sem varða inngöngu Íslands:

1 – Ekkert nágrannaland Íslands er í Evrópusambandinu (Grænland, Færeyjar, Noregur, Bretland), þau hafa ekki séð raunverulegan ávinning í því

2 – Ekkert Norðurlandanna er með Evru nema Finnland (Dk aðeins með hana tengda og geta hætt því á morgun ef vilja)

3 – Innan Evrópusambandsins eru ríki eins og Pólland og Tékkaland sem hafa ekki tekið upp Evru. Pólland er með eitt öflugasta hagkerfi innan Evrópusambandsins og telja Pólverjar það vera forsendu þessa mikla vaxtar að landið er ekki með Evruna.

4 – Það eru þrjú Evrópuríki sem hafa skarað framúr síðustu 10-15 árum hvað varðar efnahagslegan árangur, hagvöxt og bætt kjör almennings: Noregur, Sviss og Ísland. Löndin eiga það sameiginlegt að vera ekki í Evrópusambandinu og vera ekki með Evruna. Það sýnir að er ekki samhengi milli efnahagslegs árangurs og Evru (lægri vextir, lægri matarkarfa og betri húsnæðiskjör tengjast þannig ekki Evrunni)

5 – Hrunið – samanburður á Íslandi og Grikklandi – Grikkir þurftu að axla sínar skuldir og eru enn í þeim pytti meðan ekkert land reis jafn hratt upp og Ísland

6 – Það Evrópusamband sem sótt var um inngöngu síðast er ekki lengur til, Bretland er t.d. ekki aðili þar núna eins og þá og valdastrúktúrinn hefur þannig breyst innan þess

7 – Öryggis- og varnarmál. Það er í lagi með varnarsamninginn og ekkert sem hefur gerst í tíð Trump sem bendir til að varnarsamningum sé ógnað eins og gjarnan er hamrað á sem forsendu fyrir inngöngu

8 – Forsætisráðherra segir að hún leggi ekki samning fyrir þjóðina sem ekki sé boðlegur. Staðreyndin er að það er Utanríkisráðherra sem sér um það hlutverk

Að auki minnir ÓRG á að Samfylkingin hefur viljað inngöngu í 30 ár og Víðreisn var stofnuð til að ganga í Evrópusambandið. Hann leggur áherslu á að forystu fólk þessara flokka tali ekki í frösum og gylliboðum, verandi með þessa gríðarlegu ábyrð á sínum herðum, heldur verði umræðan að byggja á raundæmum og staðreyndum.

Mæli sannarlega með hlustun.“

Við eigum að vera með

Fjöldi fólks tekur þátt í umræðunni og sitt sýnist hverjum. Árni Þór Sigurðsson, fyrrum þingmaður VG, sendiherra og nú formaður Grindavíkurnefndarinnar, skrifar:

„Ég er mjög ósammála þessum sjónarmiðum mín kæra, að sjálfsögðu á að halda áfram viðræðum og leggja niðurstöðuna fyrir þjóðina. Hún er fullfær um að meta hagsmunina þegar niðurstaðan liggur fyrir. Þessi hræðsluáróður er popúlískur og andlýðræðislegur. x-JÁ!“

María Maack skrifar: „Hvílík fjöleinföldun í rökum Sir ÓRG. Hægt er að beita allt öðrum rökum gegn þessum punktum og þrjú Norðurlandanna eru í EB og vinstri Bretar

eru margir mjög tvístígandi varðandi Brexit. Evran er alls ekki úrslitakosturinn.“

Endum þetta á skrifum G. Péturs Matthíassonar:

„Ekki finnast mér þetta merkileg rök hjá ÓRG, frekar bara léleg. Ég horfi til þess að ég vil ekki að barnabörnin þurfi að borga húsnæðið sitt 4-5 sinnum vegna krónunnar. Síðan er það náttúrulega sem ætti að höfða til þín, Evrópuhugsjónin sjálf, um frið, um mannréttindi, um jafnrétti, á móti spillingu og með neytendarétti, í baráttu gegn risaafyrirækjum sem eru að gleypa okkur. Við eigum að vera með í því , eigum að vera með okkar bræðraþjóðum og leggja okkar lóð á þær vogarskálar. Óskiljanlegt að t.d. verkalýðsforkólfar beiti sér af afli gegn meira að segja atkvæðagreiðslunni um áframhald aðildarviðræðna, þegar ekkert getur komið íslensku launafólki betur en að ganga í Evrópusambandið.“