ASÍ: Vikumeðaltal lægstu bensínverða hefur hækkað um 24 krónur (tæp 13%) frá upphafi árs. Hækkunin kom meira og minna öll fram í mars, í framhaldi af stigvaxandi hernaðaraðgerðum gegn Íran. Verðhækkanir eru einungis að hluta komnar fram í mælingum Hagstofunnar, en verð hefur hækkað um 9% frá því verðtaka vegna vísitölu neysluverðs lauk þann 13. mars. Þó má vænta þess að vopnahlé í Íran muni leiða til lækkana á bensínverði en verð á heimsmarkaði hefur nú þegar lækkað um 15% frá því það var samþykkt í gær.