- Advertisement -

Bergþór: Ég sit í forundran hér úti í sal

„Ég hjó eftir því sama og háttvirtur þingmaður Bergþór Ólason, að það er kominn nýr tónn í stjórnarliðið og hann er ekki í neinu samræmi við það sem þau sögðu fyrir kosningar eða eftir að þau tóku við.“

Guðlaugur Þór Þórðarson.

„Það er svo sem ekkert sérstakt hlutverk mitt að bera blak af fyrri ríkisstjórn, mér þótti hún ekki góð að öllu leyti og reyndar býsna slæm á köflum. En ég sit eiginlega í forundran hér úti í sal og næ ekki alveg utan um þetta í ljósi þeirrar áherslu hæstvirts ráðherra, kannski sérstaklega forsætisráðherra og vissulega fjármálaráðherra á köflum, að lýsa þeirri skelfilegu stöðu sem ríkisstjórnin tók við og segja að verkfærið sem þyrfti til að ná tökum á þeirri stöðu kallaði á notkun sleggju, sem hefur svo sem komið á daginn að er einhvers lags gúmmísleggja,“ sagði Bergþór Ólason þingflokksformaður Miðflokksins.

Hann beindi máli sínu að Guðlaugi Þór Þórðarsyni Sjálfstæðisflokki.

Mig langar að spyrja háttvirtan þingmann hvort þessi mynd sem teiknast upp hér núna hjá hæstvirtum fjármálaráðherra, að mál hafi bara verið býsna vel ígrunduð og vel útfærð á fyrra kjörtímabili af fyrri ríkisstjórn, og nú sé bara haldið áfram á þeim nótum — er þetta, því að nú situr háttvirtur þingmaður í fjárlaganefnd, í einhverjum takti við umræðu sem hefur átt sér stað varðandi framlagningu og afgreiðslu fjármálaáætlunar ríkisstjórnarinnar á síðasta þingvetri og í takti það sem rætt er í fjárlaganefnd? Þetta eru alveg nýjar upplýsingar fyrir mig. Vissulega var hin nýja ríkisstjórn til að byrja með í einhvers lags skjóli af þessum fyrstu fjárlögum sem fyrri ríkisstjórn klaufaðist til að samþykkja undir þinglok á þarsíðasta þingi. En nú birtast hér fjárlög og skilaboðin eru bara: Heyrðu, þetta var allt í syngjandi fínu standi og við ætlum bara að halda áfram í sama takti. Mig langar bara að spyrja háttvirtan þingmann sem fjárlaganefndarmann og þingmann sem hefur fylgst vel með þessu: Kemur það háttvirtum þingmanni á óvart að þessi tónn sé sleginn núna?“

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Til að svara síðustu spurningunni, hvort þetta komi mér á óvart, þá er stutta svarið að þegar kemur að málflutningi hæstvirts ráðherra í þessari ríkisstjórn þá kemur mér ekkert lengur á óvart. Það er hárrétt sem háttvirtur þingmaður nefndi, að þessi ríkisstjórn hefur gengið þannig fram að hún sagði fyrir kosningar að allt væri í kaldakoli. Í miðjum stjórnarmyndunarviðræðum gerðu þau hlé á þeim af því að allt væri í kaldakoli. Svo koma þau núna og segja — það er að vísu alveg í anda fjármálaráðs og umsagnaraðila að staðan sé góð — en hún betri heldur en þau ætluðu, hallinn er minni,“ svaraði Guðlaugur Þór og endaði sína tölu svona:

„Ég hjó eftir því sama og háttvirtur þingmaður Bergþór Ólason, að það er kominn nýr tónn í stjórnarliðið og hann er ekki í neinu samræmi við það sem þau sögðu fyrir kosningar eða eftir að þau tóku við.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: