Ein af fréttum morgunsins er sú að Bergþór Ólason er hættur sem þingflokksformaður í Miðflokki. Framundan er flokksþing þar sem á að kjósa varaformann.
Ömulegt er að ætla annað en að Bergþór sækist eftir að verða varaformaður. Nokkur ár eru síðan varaformannsstaðan var aflögð.
Gunnar Bragi Sveinsson hafði verið varaformaður. Þegar stutt var í flokksing Miðflokksins tilkynnti Vigdís Hauksdóttir framboð til varaformanns. Svo óttuðust menn að Vigdísi næði kjöri að ákveðið var að afleggja stöðu varaformanns.
Sem nú verður endurvakin. Gaman verður að sjá hvort fleiri sækist eftir varaformennskunni. Eins hvort hætt verði við að kjósa varaformanns.
Mogginn greindi fyrstur frá vendingunum hjá Miðflokknum.