- Advertisement -

Bjarni segir að Svandís verði sjálf að finna peninga fyrir sálfræðiþjónustu

Katrín Baldursdóttir skrifar:

Það er ljóst hver ræður í ríkisstjórninni! Það er Bjarni Ben. Hann segir að þó Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hafi fengið heimild í lagafrumvarpi um gjaldfrjálsa sálfræðiþjónustu þá hafi hún ekki fjárheimild til þess. Og það er ekki peningur til í svona fría sálfræðiþjónustu segir Bjarni. Og hann ræður. „Eitt er að veita ráð­herra heimild til að semja við sjúkra­­tryggingar en hann verður líka að hafa fjár­heimild til að gera það,“ segir hann. Svo bregður hann fyrir sig gamla ættarhroka Engeyinganna og segir: „Við af­­greiddum bara fyrri hlutann í gær, það er að segja, í sjálfu sér er heilbrigðis­ráð­herra þá heimilt, ef hann finnur peninga í þeim heildar­heimildum sem hann hefur, til þess að gera þennan samning,“ segir hann. Sem sagt, ef Svandís finnur pening þá segir Bjarni að hún megi. Annars ekki.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: