Greinar

Björn segir Þorgerði Katrínu hafa hvorki vald á sínum málaflokki né á enskri tungu

By Miðjan

August 05, 2025

Bjarni Sigtryggsson las skrif Björns Bjarnasonar og skrifaði svo:

„Heift ýmissa forkólfa Sjálfstæðisflokksins í garð fyrrum leiðtoga þess flokks sem gekk til liðs við Viðreisn sökum óánægju með heimóttahátt xD í Evrópumálum er orðin slík að þeir missa sig nú í umræðu og snúa út úr eftir mætti. Björn Bjarnason sakar í dag Þorgerði Katrínu um að hafa hvorki vald á málaflokki sínum né enskri tungu. ÞKG sagði í viðtali við Economist að vegna breyttrar stöðu heimsmála þyrfti Ísland að efla varnar, þar meðal upplýsingaöflun um aðsteðjandi vanda. Blaðið talar um leyniþjónustu í því sambandi, enda er það orðið, sem notað er í hinum enskumælandi heimi. Hérlendis er það orð „tabú“ – bannorð í umræðunni. „Greining upplýsinga“ hljómar betur. En í æsingi sínum í garð ráðherrans snýst helsti talsmaður Sjálfstæðisflokksins í þessum málaflokki GEGN styrkingu þessa þáttar öryggismála. Er þar með Snorrabúð formlega orðin stekkur.“