Fréttir

Borgar borgin minna en 300 þúsund

By Miðjan

May 23, 2015

Stjórnmál Fulltrúar Framsóknar í borgarstjórn hafa kallað eftir upplýsingum um hvort Reykjavíkurborg greiði 300 þúsund krónur eða lægra fyrir einhver störf í borginni.

„…sú fjárhæð er krafa vinnumarkaðarins um lágmarkslaun.  Ef svo er, er óskað upplýsinga um það hvaða störf það eru, fjöldi starfanna, á hvaða sviðum þau eru og hvernig þau skiptast á milli kynja,“ segir í ósk þeirra um upplýsingarnar.