Stjórnmál

Borgin óskar eftir tugmilljarða ríkisaðstoð

By Miðjan

August 14, 2020

Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins gera alvarlega athugasemd um framferði borgarstjóra og meirihlutans:

„Á tímum COVID-19 hefur Reykjavíkurborg ítrekað óskað eftir skattfé úr ríkissjóði. Ekki er langt síðan sú ósk kom frá Reykjavíkurborg að ríkið myndi láta borgina hafa tugi milljarða í neyðaraðstoð þar sem borgin væri ógjaldfær og geti átt erfitt með að halda uppi lögbundinni grunnþjónustu. Forgangsröðun fjármuna er hér undarleg,“ bókuðu borgarfulltrúarnir á síðasta fundi borgarráðs.