- Advertisement -

Brakandi blíða og íslenskt númer

Veðurspáin næstu daga.

Vetur á Spáni. Fórum með Lettann í bílaþvottastöð. Annar dýrasti kosturinn var valinn. Kostaði fimm og hálfa evru, eða 785 krónur. Lettinn varð alveg skínandi hreinn.

Fólkið í næsta bíl á eftir okkur kom út og kynnti sig. Þau voru þýsk. Bílnúmerið okkar vakti áhuga þeirra. Höfðu verið á Íslandi og áttu ljúfar minningar frá því ferðalagi.

Veðrið er hreint magnað. Tuttugu og tvær gráður, glaða sólskin og hægur andvari. Spiluðum golf með belgískum hjónum.  

Fram undan er að njóta veðursins og herða á verðsamanburði hér og heima.



Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: