Greinar

Braskarar og hrægammar

By Miðjan

March 21, 2026

Umræðan: Ragnar Önundarson skrifaði þessa fínu grein og mælir eflaust fyrir hönd margra:

„Fjárfestar“ eru, skv. hagfræðinni, þeir sem festa fé sitt til langs tíma, oft óafturkallanlega, í framleiðslutækjum og skapa öðrum atvinnu með því. Þeir þrauka þolinmóðir með fyrirtækjum sínum gegnum þykkt og þunnt. Þeir skilja og meta hlut starfsfólksins í árangri fyrirtækisins. Það er virðingarvert.

Þeir sem nú skreyta sig með þessu gamla virðingar-heiti eru hins vegar „spákaupmenn“, stundum nefndir „braskarar,“ sem kaupa verðbréf og önnur auð-seljanleg markaðsverðmæti. Stundum kaupa þeir atvinnufyrirtæki til niðurrifs. Þeir bera enga ábyrgð og stökkva án fyrirvara frá verkefnum og fyrirtækjum. Þeir eru alveg tilfinningalausir gagnvart þeim fjölskyldum sem hafa lífsviðurværi af þeim. Þess vegna er þeim oft líkt við „hrægamma“. Þeir uppskera ekki virðingu, en stundum þá aðdáun sem fylgir miklum peningum. Margir nudda sér utan í þá í von um að njóta.“