Stjórnmál

Breytingar á Schengen auka öryggi

By Miðjan

March 31, 2026

„Með þessum breytingum erum við að auka öryggi á landamærum. Við erum að efla greiningargetu lögreglu og tryggja að íslensk stjórnvöld hafi aðgang í rauntíma að upplýsingum um einstaklinga sem grunaðir eru um aðild að hryðjuverkum eða öðrum alvarlegum glæpum. Þetta skiptir sköpum og er mikilvægur liður í baráttunni gegn skipulagðri glæpastarfsemi,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra,“ vef stjórnarráðsins.

Frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á lögum um Schengen-upplýsingakerfið (SIS) hefur verið samþykkt á Alþingi. Með lögunum er lögfest heimild til að skrá upplýsingar um ríkisborgara þriðju ríkja sem tengjast skipulagðri glæpastarfsemi, hryðjuverkum eða öðrum alvarlegum afbrotum í Schengen-upplýsingakerfið. Þá er einnig skýrari rammi settur um viðbrögð stjórnvalda á grundvelli slíkra skráninga.

Markmið lagabreytinganna er að efla öryggi almennings og eru liður í því að tryggja betur öryggi á Schengen-svæðinu. Þær eru mikilvægar í baráttunni gegn skipulögðum glæpum og tryggja aðildarríkjum Schengen-samstarfsins aðgang að mikilvægum upplýsingum við eftirlit á landamærum.

Schengen-upplýsingakerfið gegnir lykilhlutverki í samvinnu um öryggis- og löggæslumál. Í ljósi þess að alvarleg brot og hryðjuverk eru framin þvert á landamæri skipta upplýsingar sífellt meira máli í baráttunni gegn brotastarfsemi.

Með breytingunum verður heimilt að skrá í kerfið upplýsingar sem berast frá Europol um einstaklinga sem taldir eru tengjast hryðjuverkum eða skipulagðri glæpastarfsemi, að undangenginni greiningu og sannprófun gagna. Breytingarnar tryggja að lögregla og landamærayfirvöld hafi greiðari aðgang að upplýsingum sem geta komið í veg fyrir alvarleg brot og stuðlað að skilvirkara eftirliti á landamærum.

Lagabreytingarnar eru jafnframt liður í að uppfylla skuldbindingar Íslands innan Schengen-samstarfsins og styrkja þátttöku landsins í sameiginlegu öryggiskerfi Evrópu. Með þeim er Ísland betur í stakk búið til að taka þátt í samræmdum aðgerðum gegn alþjóðlegri brotastarfsemi.

Lögin taka gildi á næstu misserum og mun innleiðing þeirra fara fram í nánu samstarfi við lögreglu, landamærayfirvöld og alþjóðlega samstarfsaðila.