- Advertisement -

„Brim veiðir meira en Þýskaland“

Þórður Magg skrifaði:

„Var að hlusta á Silfrið. Góð umræða, loks yfirveguð og skynsöm umræða. Það sló mig samt að Bjarni Ben viti ekki hversu gríðarstór íslenskur sjávarútvegur er á evrópska vísu:

  • 1. sæti er Ísland – lang stærst með milljón tonn til 1,3 millj tonn.
  • 2. sæti er Spánn með 665 þús tonn
  • 3. sætið er Frakkland með 475 þús tonn
  • 4. sæti er Danmörk með 460 þús tonn
  • 5. sæti er Holland með 296 þús tonn
  • 6-8 sæti eru Þýskaland, Svíþjóð og Pólland 120-170 þús tonn
  • Önnur lönd eru minni.

Við erum risar á þessu sviði. Svo stöndum við þessum þjóðum framar þegar kemur að tækni, umgengni og gæðum.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Hornsíli éta ekki hákarla. Okkar sjávarútvegur mun geta gleypt Evrópskan. Þetta er svið þar sem aðrar þjóðir hafa ekki tærnar þar sem við höfum hælana.

Eins og Guðmundur sagði; „Brim veiðir meira en Þýskaland“.

Ef ég væri Þýskaland þá væri ég hræddur við Guðmund.

PS: Mér var bent á að orðalag mitt væri ekki rétt. Ég skil Noreg undan, sem er stærri en við. Ég var að hugsa – við og aðrar þjóðir ESB. Hvar erum við í því samhengi. Svo þá er ég búinn að leiðrétta sjálfan mig.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: