Hrafn Magnússon skrifaði:
„Verðsamráð olíufélaganna á fákeppnismarkaði á sér langa sögu hér á landi. Það er því fagnaðarefni að Samkeppniseftirlitið sé með rekstur olíufélaganna til skoðunar.
Í sjálfu sér er starfsemi og rekstur olíufélaganna einfaldur.
Eldsneyti, svo sem olía og bensín, er nauðsynleg þjóðfélaginu líkt og rafmagn og hitaveita. Ég ætlast ekki til þess að hér verði starfsemi olíufélaganna færð undir stjórn hins opinbera, líkt og nú gerist með RARIK og Orkuveituna, svo dæmi séu tekin, en augljós langvarandi brotavilji olīufélaganna um áratuga skeið er ekker annað en sjálftaka á kostnað almennings að mínu áliti. Því ber að fagna að rekstur og verðsamráð olíufélaganna er komin í eins konar gjörgæslu hjá Samkeppniseftirlitinu.“